-
3. Mósebók 7:33–35Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
33 Sá af sonum Arons sem ber fram blóð samneytisfórnanna og fituna fær hægra lærið í sinn hlut.+ 34 Af samneytisfórnum Ísraelsmanna tek ég bringu veififórnarinnar og læri hins heilaga hluta og gef Aroni presti og sonum hans. Þetta er varanlegt ákvæði fyrir Ísraelsmenn.+
35 Þetta var sá hluti af eldfórnum Jehóva sem prestarnir, Aron og synir hans, áttu að fá daginn sem þeir voru leiddir fram til að þjóna Jehóva sem prestar.+
-
-
5. Mósebók 18:1Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
18 Enginn Levítaprestur og reyndar enginn af ættkvísl Leví skal fá eignar- eða erfðahlut með öðrum í Ísrael. Þeir eiga að borða af eldfórnunum handa Jehóva sem eru erfðahlutur hans.+
-