-
2. Samúelsbók 21:8–11Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
8 Hann tók báða syni Rispu+ Ajadóttur sem hún eignaðist með Sál, þá Armóní og Mefíbóset, og fimm syni Míkal*+ Sálsdóttur sem hún eignaðist með Adríel+ Barsillaísyni Mehólatíta. 9 Síðan framseldi hann þá Gíbeonítum en þeir hengdu lík þeirra upp á fjallinu frammi fyrir Jehóva.+ Allir sjö voru teknir af lífi saman. Þeir voru líflátnir á fyrstu dögum uppskerunnar, í byrjun bygguppskerunnar. 10 Rispa+ Ajadóttir tók hærusekk og breiddi hann út á klettinum handa sér. Hún var þar frá byrjun uppskerunnar þar til regnið tók að hellast af himni yfir líkin. Hún fældi fuglana burt svo að þeir settust ekki á þau á daginn og villtu dýrin svo að þau kæmu ekki nálægt þeim á nóttinni.
11 Davíð var sagt hvað Rispa Ajadóttir hjákona Sáls hafði gert.
-