-
1. Konungabók 21:19–24Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
19 Segðu við hann: ‚Jehóva segir: „Hefurðu myrt manninn+ og tekið landið hans í þokkabót?“‘+ Segðu síðan: ‚Jehóva segir: „Á sama stað og hundarnir sleiktu upp blóð Nabóts munu hundar sleikja upp blóð þitt.“‘“+
20 Akab sagði við Elía: „Þú fannst mig, óvinur minn!“+ „Já, ég fann þig,“ svaraði Elía. „Guð segir: ‚Af því að þú ert ákveðinn í* að gera það sem er illt í augum Jehóva+ 21 ætla ég að leiða ógæfu yfir þig. Ég mun sópa burt afkomendum þínum og tortíma öllum karlmönnum* af ætt Akabs,+ jafnvel hinum vesælu og veikburða í Ísrael.+ 22 Ég fer með ætt þína eins og ætt Jeróbóams+ Nebatssonar og ætt Basa+ Ahíasonar því að þú hefur reitt mig til reiði og fengið Ísrael til að syndga.‘ 23 Og um Jesebel hefur Jehóva sagt: ‚Hundar munu éta Jesebel á landareign Jesreel.+ 24 Hundar munu éta hvern þann af ætt Akabs sem deyr í borginni og fuglar himins hvern þann sem deyr úti á víðavangi.+
-
-
2. Konungabók 9:7Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
7 Þú átt að útrýma ætt Akabs herra þíns. Þannig kem ég fram hefndum fyrir blóð þjóna minna, spámannanna, og allra þjóna Jehóva sem hafa fallið fyrir hendi Jesebelar.+
-