29 Þá sneri Jóram konungur aftur til Jesreel+ til að láta sárin gróa sem Sýrlendingar höfðu veitt honum við Rama* þegar hann barðist við Hasael Sýrlandskonung.+ Ahasía Jóramsson Júdakonungur fór niður til Jesreel til að heimsækja Jóram Akabsson af því að hann var særður.*
21 „Spennið hesta fyrir vagninn,“ sagði Jóram. Þá var spennt fyrir vagn hans. Jóram Ísraelskonungur og Ahasía+ Júdakonungur óku nú hvor í sínum vagni á móti Jehú og mættu honum á landareign Nabóts+ frá Jesreel.
27 Þegar Ahasía+ Júdakonungur sá þetta flúði hann í átt að garðhúsinu. (Seinna elti Jehú hann og sagði: „Drepið hann líka!“ Þeir særðu hann þegar hann var í vagni sínum á leið upp til Gúr sem er við Jibleam.+ En hann náði að flýja til Megiddó og dó þar.
22Jerúsalembúar gerðu nú Ahasía, yngsta son Jórams, að konungi í hans stað því að ránsflokkurinn sem hafði komið með Aröbunum í búðirnar hafði drepið alla eldri bræðurna.+ Þess vegna varð Ahasía Jóramsson konungur yfir Júda.+