4 Síðan gaf hún honum Bílu þjónustustúlku sína fyrir konu, og hann svaf hjá henni.+5 Bíla varð barnshafandi og ól Jakobi son. 6 Þá sagði Rakel: „Guð hefur dæmt í máli mínu. Hann hefur hlustað á mig og gefið mér son.“ Þess vegna nefndi hún hann Dan.*+
16 Dan+ verður dómari þjóðar sinnar sem ein af ættkvíslum Ísraels.+17 Dan verður höggormur við veginn, hornslanga við stíginn, sem bítur hestinn í hælinn svo að knapinn dettur aftur fyrir sig.+18 Ég bíð eftir að þú bjargir okkur, Jehóva.