-
Sálmur 119:139Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
139 Ég brenn af ákafa vegna þín+
því að andstæðingar mínir hafa gleymt orðum þínum.
-
-
Markús 11:15–17Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
15 Þeir komu nú til Jerúsalem. Jesús gekk inn í musterið og fór að reka út þá sem seldu þar og keyptu. Hann velti um koll bekkjum dúfnasalanna og borðum þeirra sem skiptu peningum+ 16 og leyfði engum að bera nokkurt áhald gegnum musterið. 17 Hann kenndi þeim og sagði: „Stendur ekki skrifað: ‚Hús mitt verður kallað bænahús fyrir allar þjóðir‘?+ En þið hafið gert það að ræningjabæli.“+
-
-
Jóhannes 2:13–17Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
13 Nú voru páskar+ Gyðinga í nánd og Jesús fór upp til Jerúsalem. 14 Í musterinu sá hann þá sem seldu nautgripi, sauðfé og dúfur+ og víxlarana sem sátu þar. 15 Hann gerði sér svipu úr reipum og rak þá alla út úr musterinu ásamt sauðfénu og nautgripunum, dreifði peningum víxlaranna út um allt og velti borðum þeirra um koll.+ 16 Og hann sagði við dúfnasalana: „Burt með þetta héðan! Hættið að nota hús föður míns sem sölumarkað!“*+ 17 Lærisveinarnir minntust þess að skrifað er: „Ég brenn af ákafa vegna húss þíns.“+
-