-
2. Mósebók 18:21, 22Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
21 En veldu meðal fólksins hæfa menn+ sem óttast Guð, trausta menn sem hafa óbeit á illa fengnum gróða,+ og settu þá foringja yfir þúsund manna flokkum, yfir hundrað manna, fimmtíu manna og tíu manna flokkum.+ 22 Láttu þá dæma þegar mál koma upp* meðal fólksins. Öll erfið mál skulu þeir leggja fyrir þig+ en dæma sjálfir í öllum minni háttar málum. Gerðu þér auðveldara fyrir með því að láta þá bera byrðina með þér.+
-