Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • Sálmur 53:yfirskrift–6
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • Til tónlistarstjórans. Í makalat-stíl.* Maskíl* eftir Davíð.

      53 Heimskinginn segir í hjarta sínu:

      „Jehóva er ekki til.“+

      Ranglætisverk þeirra eru spillt og andstyggileg,

      enginn gerir það sem er gott.+

       2 En Guð lítur á mennina af himni ofan+

      til að sjá hvort nokkur sé skynsamur, hvort nokkur leiti Jehóva.+

       3 Þeir hafa allir vikið af réttri braut,

      þeir eru allir spilltir.

      Enginn gerir það sem er gott,

      ekki einn einasti.+

       4 Skilja þeir ekki neitt, þessir illvirkjar?

      Þeir gleypa í sig fólk mitt eins og brauð

      og ákalla ekki Jehóva.+

       5 En þeir verða skelfingu lostnir,

      hræddari en nokkru sinni fyrr*

      því að Guð tvístrar beinum þeirra sem ráðast gegn þér.*

      Þú niðurlægir þá því að Jehóva hefur hafnað þeim.

       6 Ó, að Ísrael berist hjálp frá Síon!+

      Jakob gleðjist, Ísrael fagni

      þegar Jehóva flytur herleitt fólk sitt aftur heim.

  • Rómverjabréfið 3:10–12
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 10 Það er eins og skrifað stendur: „Enginn er réttlátur, ekki einn einasti.+ 11 Enginn hefur nokkurn skilning, enginn leitar Guðs. 12 Allir hafa farið af réttri leið, allir eru orðnir óhæfir. Enginn sýnir góðvild, ekki nokkur maður.“+

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila