-
1. Samúelsbók 1:10, 11Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
10 Hanna var í miklu uppnámi. Hún bað til Jehóva+ og hágrét. 11 Hún vann svohljóðandi heit: „Jehóva hersveitanna, ef þú lítur á eymd ambáttar þinnar og gleymir mér ekki heldur minnist mín og gefur ambátt þinni son+ þá skal ég gefa hann þér, Jehóva, alla ævi hans og rakhnífur skal ekki snerta höfuð hans.“+
-
-
2. Samúelsbók 16:11, 12Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
11 Síðan sagði Davíð við Abísaí og alla þjóna sína: „Minn eigin sonur, hold mitt og blóð, vill drepa mig.+ Get ég þá búist við einhverju öðru af þessum Benjamíníta?+ Látið hann vera og leyfið honum að bölva mér því að Jehóva hefur sagt honum að gera það. 12 Ég vona að Jehóva sjái raunir mínar.+ Kannski lætur Jehóva mig njóta blessunar í stað svívirðinga hans í dag.“+
-
-
Jesaja 38:9Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
9 Ljóð sem Hiskía Júdakonungur orti meðan hann var veikur og eftir að hann náði sér.
-
-
Jesaja 38:20Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
20 Jehóva, bjargaðu mér!
-