-
Jeremía 34:15, 16Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
15 Nýlega* breyttuð þið um stefnu og gerðuð það sem var rétt í augum mínum með því að boða löndum ykkar frelsi. Þið gerðuð sáttmála frammi fyrir mér í húsinu sem er kennt við nafn mitt. 16 En síðan snerist ykkur hugur og þið köstuðuð rýrð á nafn mitt+ með því að sækja aftur þræla ykkar og ambáttir sem þið höfðuð gefið frelsi svo að þau gætu farið frjáls ferða sinna. Þið hnepptuð þau aftur í þrældóm.‘
-
-
Míka 3:2–4Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
2 En þið hatið hið góða+ og elskið hið illa.+
Þið slítið húðina af fólki mínu og holdið af beinum þess.+
3 Þið étið holdið af fólki mínu+
og fláið húðina af,
brjótið beinin og molið þau í sundur+
eins og bein sem soðin eru í potti,* eins og kjöt í potti.
4 Á þeim tíma munu menn kalla á hjálp Jehóva
en hann svarar þeim ekki.
-