-
Jeremía 21:7Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
7 ‚„Eftir það,“ segir Jehóva, „gef ég Sedekía Júdakonung, þjóna hans og íbúa þessarar borgar – þá sem lifa af drepsóttina, sverðið og hungursneyðina – í hendur Nebúkadnesars* Babýlonarkonungs, í hendur óvina þeirra og í hendur þeirra sem vilja drepa þá.+ Hann mun drepa þá með sverði og hvorki finna til með þeim, kenna í brjósti um þá né sýna þeim nokkra miskunn.“‘+
-
-
Jeremía 34:18–20Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
18 Svona fer fyrir þeim sem rufu sáttmála minn og héldu ekki orð sáttmálans sem þeir gerðu frammi fyrir mér þegar þeir skáru kálfinn í tvennt og gengu á milli helminganna,+ 19 já, svona fer fyrir höfðingjum Júda, höfðingjum Jerúsalem, hirðmönnunum, prestunum og öllum íbúum í landinu sem gengu á milli kálfshelminganna: 20 Ég framsel þá óvinum þeirra og þeim sem vilja drepa þá. Lík þeirra verða æti handa fuglum himins og dýrum jarðar.+
-