Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • 2. Konungabók 25:9–11
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 9 Hann brenndi hús Jehóva,+ konungshöllina*+ og öll hús í Jerúsalem.+ Hann brenndi líka hús allra stórmenna í borginni.+ 10 Allur her Kaldea sem var undir forystu varðforingjans reif niður múrana umhverfis Jerúsalem.+ 11 Nebúsaradan varðforingi flutti í útlegð þá sem eftir voru í borginni, liðhlaupana sem höfðu gengið til liðs við konung Babýlonar og alla aðra sem eftir voru.+

  • 2. Kroníkubók 36:17
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 17 Hann sendi konung Kaldea gegn henni.+ Konungurinn drap unga menn hennar með sverði+ í helgidóminum+ og kenndi hvorki í brjósti um unga karla né konur, aldraða né veikburða.+ Guð gaf allt í hendur hans.+

  • 2. Kroníkubók 36:19
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 19 Hann brenndi hús hins sanna Guðs,+ reif niður múr Jerúsalem,+ kveikti í öllum víggirtum turnum borgarinnar og eyðilagði öll verðmæti.+

  • Nehemíabók 1:3
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 3 Þeir svöruðu: „Þeir sem sneru aftur úr útlegðinni og búa í skattlandinu lifa við skelfilegar aðstæður og eru niðurlægðir.+ Múrar Jerúsalem eru í rústum+ og hliðin hafa verið brennd.“+

  • Jeremía 52:13–15
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 13 Hann brenndi hús Jehóva,+ konungshöllina* og öll hús í Jerúsalem. Hann brenndi líka öll stórhýsin. 14 Allur her Kaldea sem var undir forystu varðforingjans reif niður múrana umhverfis Jerúsalem.+

      15 Nebúsaradan varðforingi flutti í útlegð hluta af lágstéttarfólkinu og þá sem eftir voru í borginni. Hann flutti einnig með sér liðhlaupana sem höfðu slegist í lið með konungi Babýlonar og þá sem eftir voru af handverksmönnunum.+

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila