Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • 5. Mósebók 13:6–9
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 6 Segjum að bróðir þinn, sonur móður þinnar, eða sonur þinn eða dóttir, ástkær eiginkona þín eða nánasti vinur þinn* reyni að tæla þig með leynd og segi: ‚Förum og þjónum öðrum guðum,‘+ guðum sem hvorki þú né forfeður þínir þekktu, 7 guðum þjóðanna í kring, hvort heldur þær búa nærri eða fjarri, hvar sem er í landinu. 8 Þá skaltu ekki láta undan eða hlusta á hann+ og þú skalt ekki heldur vorkenna honum, hafa samúð með honum eða hlífa honum 9 heldur skaltu taka hann af lífi.+ Þú skalt vera fyrstur til að leggja hönd á hann til að taka hann af lífi og síðan á allt fólkið að gera slíkt hið sama.+

  • 5. Mósebók 32:17
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 17 Þeir færðu fórnir illum öndum en ekki Guði,+

      guðum sem þeir höfðu ekki þekkt,

      nýjum guðum, nýtilkomnum,

      guðum sem forfeður þínir þekktu ekki.

  • Jeremía 19:4
    Biblían – Nýheimsþýðingin
    • 4 Þetta geri ég af því að þeir hafa yfirgefið mig+ og gert þennan stað óþekkjanlegan.+ Hér færa þeir öðrum guðum fórnir, guðum sem hvorki þeir, forfeður þeirra né Júdakonungar höfðu áður þekkt, og þeir hafa fyllt þennan stað af blóði saklausra.+

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila