-
Jeremía 5:19Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
19 Þegar fólk spyr: ‚Af hverju hefur Jehóva Guð okkar gert okkur allt þetta?‘ skaltu svara: ‚Þið yfirgáfuð mig til að þjóna útlendum guði í landi ykkar. Þess vegna munuð þið þjóna útlendingum í landi sem er ekki ykkar.‘“+
-
-
Jeremía 16:10, 11Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
10 Þegar þú segir fólkinu allt þetta mun það spyrja þig: ‚Hvers vegna hefur Jehóva boðað okkur allar þessar miklu hörmungar? Hvað höfum við gert rangt og hvaða synd höfum við drýgt gegn Jehóva Guði okkar?‘+ 11 Þú skalt svara: ‚„Það er vegna þess að forfeður ykkar yfirgáfu mig,“+ segir Jehóva, „og fylgdu öðrum guðum, þjónuðu þeim og féllu fram fyrir þeim.+ En þeir yfirgáfu mig og héldu ekki lög mín.+
-