-
Esekíel 1:27, 28Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
27 Frá því sem virtist vera mitti hans og upp úr sá ég eitthvað sem glampaði eins og hvítagull+ og lýsti eins og eldur. Og frá mitti og niður úr var eitthvað sem líktist eldi.+ Allt í kringum hann var ljómi 28 sem líktist regnboga+ í skýi á votviðrisdegi. Þannig var ljóminn umhverfis hann á að líta. Það var eins og ég sæi dýrð Jehóva.+ Þegar ég sá þetta féll ég á grúfu og ég heyrði rödd einhvers sem talaði.
-