-
Daníel 2:34, 35Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
34 Meðan þú horfðir á losnaði steinn nokkur en þó ekki af mannavöldum.* Hann lenti á fótum líkneskisins sem voru úr járni og leir og mölvaði þá.+ 35 Þá molnaði allt saman, járnið, leirinn, koparinn, silfrið og gullið, og varð eins og hismi á þreskivelli að sumri. Vindurinn feykti því öllu burt svo að ekki var snefill eftir. En steinninn sem lenti á líkneskinu varð að stóru fjalli sem þakti alla jörðina.
-