-
1. Konungabók 17:9, 10Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
9 „Haltu af stað og farðu til Sarefta sem tilheyrir Sídon og vertu þar um kyrrt. Ég mun segja ekkju nokkurri sem býr þar að gefa þér að borða.“+ 10 Hann lagði þá af stað og fór til Sarefta. Þegar hann kom að borgarhliðinu var þar ekkja nokkur að tína saman eldivið. Hann kallaði til hennar og sagði: „Færðu mér vatnssopa að drekka.“+
-
-
1. Konungabók 17:20–23Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
20 Hann hrópaði til Jehóva: „Jehóva Guð minn,+ ætlarðu nú líka að leiða ógæfu yfir ekkjuna sem ég gisti hjá og svipta son hennar lífi?“ 21 Síðan teygði hann sig þrisvar yfir drenginn og hrópaði til Jehóva: „Jehóva Guð minn, gefðu drengnum lífið aftur.“ 22 Jehóva bænheyrði Elía+ og drengurinn lifnaði við.+ 23 Elía tók þá drenginn og bar hann úr þakherberginu niður í húsið, gaf hann móður hans og sagði: „Sjáðu, sonur þinn er lifandi!“+
-
-
2. Konungabók 4:13–17Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
13 Hann sagði við Gehasí: „Segðu við hana: ‚Þú hefur haft svo mikið fyrir okkur.+ Hvað get ég gert fyrir þig?+ Á ég að tala máli þínu við konunginn+ eða hershöfðingjann?‘“ En hún svaraði: „Nei, ég bý hér á meðal ættingja minna.“ 14 Þá sagði Elísa: „Hvað get ég þá gert fyrir hana?“ Gehasí svaraði: „Hún á engan son+ og maðurinn hennar er orðinn gamall.“ 15 Þá sagði hann strax: „Kallaðu á hana.“ Og hann kallaði á hana. Þegar hún stóð í dyragættinni 16 sagði hann: „Á þessum tíma að ári liðnu muntu halda á syni í fanginu.“+ En hún svaraði: „Nei, herra. Þú ert maður hins sanna Guðs! Ekki ljúga að mér.“
17 En konan varð barnshafandi og fæddi son á sama tíma að ári liðnu eins og Elísa hafði sagt.
-