-
Markús 10:2–12Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
2 Farísear komu til hans, ákveðnir í að reyna hann, og þeir spurðu hann hvort maður mætti skilja við konu sína.+ 3 Hann svaraði þeim: „Hvaða fyrirmæli gaf Móse ykkur?“ 4 Þeir svöruðu: „Móse sagði að það mætti skrifa skilnaðarbréf og skilja við hana.“+ 5 Jesús sagði við þá: „Hann gaf ykkur þetta boðorð+ vegna þess hve harðbrjósta þið eruð.+ 6 En í upphafi sköpunar ‚gerði Guð þau karl og konu.+ 7 Af þeirri ástæðu yfirgefur maður föður sinn og móður+ 8 og þau tvö verða eitt‘*+ þannig að þau eru ekki lengur tvö heldur eitt.* 9 Það sem Guð hefur tengt saman má enginn maður aðskilja.“+ 10 Þegar þeir voru komnir aftur inn í húsið spurðu lærisveinarnir hann út í þetta. 11 Hann sagði við þá: „Sá sem skilur við konu sína og giftist annarri fremur hjúskaparbrot+ 12 og ef kona skilur nokkurn tíma við mann sinn og giftist öðrum fremur hún hjúskaparbrot.“+
-