-
Markús 14:43–47Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
43 Í sömu andrá, meðan hann var enn að tala, kom Júdas, einn þeirra tólf, og með honum fjöldi manna með sverð og barefli en yfirprestarnir, fræðimennirnir og öldungarnir höfðu sent þá.+ 44 Svikarinn hafði samið um að gefa þeim merki og sagt: „Sá sem ég kyssi er maðurinn. Handtakið hann og farið með hann í fylgd varða.“ 45 Hann gekk rakleiðis til Jesú og sagði: „Rabbí!“ og kyssti hann blíðlega. 46 Þá gripu þeir hann og tóku hann höndum. 47 En einn viðstaddra dró sverð úr slíðrum, hjó til þjóns æðstaprestsins og sneið af honum eyrað.+
-
-
Lúkas 22:47–51Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
47 Meðan hann var enn að tala kom hópur manna og fremstur var Júdas, einn þeirra tólf. Hann gekk að Jesú til að kyssa hann.+ 48 En Jesús sagði við hann: „Júdas, svíkurðu Mannssoninn með kossi?“ 49 Þegar þeir sem voru með honum sáu hvað var að gerast sögðu þeir: „Drottinn, eigum við að grípa til sverðs?“ 50 Einn þeirra hjó meira að segja til þjóns æðstaprestsins og sneið af honum hægra eyrað.+ 51 Þá sagði Jesús: „Þetta er nóg.“ Síðan snerti hann eyra mannsins og læknaði hann.
-