-
Matteus 12:46–50Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
46 Meðan hann var enn að tala við fólkið komu móðir hans og bræður.+ Þau stóðu fyrir utan og vildu tala við hann.+ 47 Einhver sagði þá við hann: „Móðir þín og bræður standa fyrir utan og vilja tala við þig.“ 48 Hann svaraði þeim sem talaði við hann: „Hver er móðir mín og hverjir eru bræður mínir?“ 49 Síðan rétti hann út höndina í átt að lærisveinum sínum og sagði: „Sjáið, hér eru móðir mín og bræður.+ 50 Hver sem gerir vilja föður míns sem er á himnum, sá er bróðir minn og systir og móðir.“+
-