-
Matteus 12:38–42Biblían – Nýheimsþýðingin
-
-
38 Nokkrir fræðimenn og farísear svöruðu honum og sögðu: „Kennari, við viljum sjá þig gera tákn.“+ 39 Hann svaraði þeim: „Vond og ótrú kynslóð heimtar stöðugt að fá tákn en hún fær ekkert annað en tákn Jónasar spámanns.+ 40 Jónas var í kviði stórfisksins í þrjá daga og þrjár nætur+ og eins verður Mannssonurinn í djúpi jarðar í þrjá daga og þrjár nætur.+ 41 Nínívemenn rísa upp í dóminum ásamt þessari kynslóð og dæma hana seka því að þeir iðruðust vegna boðunar Jónasar.+ En hér er meira en Jónas.+ 42 Drottningin í suðri verður reist upp í dóminum ásamt þessari kynslóð og dæmir hana seka því að hún kom frá endimörkum jarðar til að hlusta á visku Salómons.+ En hér er meira en Salómon.+
-