Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • 1. Mósebók 43
  • Biblían – Nýheimsþýðingin

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

1. Mósebók – yfirlit

      • Bræður Jósefs fara aftur til Egyptalands, nú með Benjamín (1–14)

      • Jósef hittir bræður sína á ný (15–23)

      • Jósef heldur veislu fyrir bræður sína (24–34)

1. Mósebók 43:1

Millivísanir

  • +1Mó 41:30; Pos 7:11

1. Mósebók 43:2

Millivísanir

  • +1Mó 42:1, 2

1. Mósebók 43:3

Millivísanir

  • +1Mó 42:15

1. Mósebók 43:5

Millivísanir

  • +1Mó 42:15

1. Mósebók 43:6

Millivísanir

  • +1Mó 32:28

1. Mósebók 43:7

Millivísanir

  • +1Mó 42:13
  • +1Mó 42:16

1. Mósebók 43:8

Millivísanir

  • +1Mó 37:26; 42:38
  • +1Mó 42:1, 2
  • +Pos 7:14

1. Mósebók 43:9

Neðanmáls

  • *

    Eða „mun bera synd mína“.

Millivísanir

  • +1Mó 44:32

1. Mósebók 43:11

Millivísanir

  • +1Mó 32:20
  • +Jer 8:22; Esk 27:17
  • +1Mó 37:25

1. Mósebók 43:12

Millivísanir

  • +1Mó 42:25, 35

1. Mósebók 43:14

Millivísanir

  • +1Mó 42:36

1. Mósebók 43:15

Millivísanir

  • +1Mó 37:7, 9

1. Mósebók 43:17

Millivísanir

  • +1Mó 41:39, 40

1. Mósebók 43:18

Millivísanir

  • +1Mó 42:25, 35

1. Mósebók 43:20

Millivísanir

  • +1Mó 42:3

1. Mósebók 43:21

Millivísanir

  • +1Mó 42:27

1. Mósebók 43:22

Millivísanir

  • +1Mó 43:12

1. Mósebók 43:23

Millivísanir

  • +1Mó 42:23, 24

1. Mósebók 43:25

Millivísanir

  • +1Mó 43:11
  • +1Mó 43:16

1. Mósebók 43:26

Millivísanir

  • +1Mó 37:7, 9; 42:6

1. Mósebók 43:27

Millivísanir

  • +1Mó 43:7

1. Mósebók 43:28

Millivísanir

  • +1Mó 37:7, 9

1. Mósebók 43:29

Millivísanir

  • +1Mó 35:24
  • +1Mó 42:13

1. Mósebók 43:30

Millivísanir

  • +1Mó 42:23, 24

1. Mósebók 43:32

Millivísanir

  • +1Mó 46:33, 34; 2Mó 8:26

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    1.2.2004, bls. 31

1. Mósebók 43:33

Neðanmáls

  • *

    Orðrétt „Þeim“.

Millivísanir

  • +1Mó 49:3; 5Mó 21:17

1. Mósebók 43:34

Millivísanir

  • +1Mó 45:22

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    1.9.1987, bls. 26, 27-28

Almennt

1. Mós. 43:11Mó 41:30; Pos 7:11
1. Mós. 43:21Mó 42:1, 2
1. Mós. 43:31Mó 42:15
1. Mós. 43:51Mó 42:15
1. Mós. 43:61Mó 32:28
1. Mós. 43:71Mó 42:13
1. Mós. 43:71Mó 42:16
1. Mós. 43:81Mó 37:26; 42:38
1. Mós. 43:81Mó 42:1, 2
1. Mós. 43:8Pos 7:14
1. Mós. 43:91Mó 44:32
1. Mós. 43:111Mó 32:20
1. Mós. 43:11Jer 8:22; Esk 27:17
1. Mós. 43:111Mó 37:25
1. Mós. 43:121Mó 42:25, 35
1. Mós. 43:141Mó 42:36
1. Mós. 43:151Mó 37:7, 9
1. Mós. 43:171Mó 41:39, 40
1. Mós. 43:181Mó 42:25, 35
1. Mós. 43:201Mó 42:3
1. Mós. 43:211Mó 42:27
1. Mós. 43:221Mó 43:12
1. Mós. 43:231Mó 42:23, 24
1. Mós. 43:251Mó 43:11
1. Mós. 43:251Mó 43:16
1. Mós. 43:261Mó 37:7, 9; 42:6
1. Mós. 43:271Mó 43:7
1. Mós. 43:281Mó 37:7, 9
1. Mós. 43:291Mó 35:24
1. Mós. 43:291Mó 42:13
1. Mós. 43:301Mó 42:23, 24
1. Mós. 43:321Mó 46:33, 34; 2Mó 8:26
1. Mós. 43:331Mó 49:3; 5Mó 21:17
1. Mós. 43:341Mó 45:22
  • Biblían – Nýheimsþýðingin
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • 14
  • 15
  • 16
  • 17
  • 18
  • 19
  • 20
  • 21
  • 22
  • 23
  • 24
  • 25
  • 26
  • 27
  • 28
  • 29
  • 30
  • 31
  • 32
  • 33
  • 34
Biblían – Nýheimsþýðingin
1. Mósebók 43:1–34

Fyrsta Mósebók

43 Hungursneyðin var mikil í landinu.+ 2 Þegar þeir höfðu klárað allt kornið sem þeir komu með frá Egyptalandi+ sagði faðir þeirra við þá: „Farið aftur og kaupið handa okkur vistir.“ 3 Júda sagði þá við hann: „Maðurinn tók það skýrt fram að við mættum ekki koma aftur til hans nema bróðir okkar væri með okkur.+ 4 Ef þú sendir bróður okkar með okkur skulum við fara og kaupa vistir fyrir þig. 5 En ef þú leyfir honum ekki að koma með getum við ekki farið því að maðurinn sagði við okkur: ‚Þið megið ekki koma aftur til mín nema bróðir ykkar sé með ykkur.‘“+ 6 Þá spurði Ísrael:+ „Hvers vegna þurftuð þið að koma mér í þessi vandræði? Þurftuð þið endilega að segja manninum að þið ættuð einn bróður enn?“ 7 Þeir svöruðu: „Maðurinn spurði beint út um hagi okkar og fjölskyldu okkar. ‚Er faðir ykkar enn á lífi?‘ spurði hann. ‚Eigið þið einn bróður enn?‘ og við sögðum honum eins og var.+ Hvernig gátum við vitað að hann myndi segja: ‚Komið með bróður ykkar hingað‘?“+

8 Júda sagði við Ísrael föður sinn: „Leyfðu drengnum að fara með mér+ og leyfðu okkur að leggja af stað svo að við höldum lífi og deyjum ekki,+ bæði við og þú og börnin okkar.+ 9 Ég mun tryggja öryggi hans.+ Ef ég kem ekki með hann aftur til þín og færi þér hann máttu draga mig til ábyrgðar og ég verð sekur við þig* alla ævi. 10 Ef við hefðum ekki beðið svona lengi værum við nú komnir heim í annað sinn.“

11 Þá sagði Ísrael faðir þeirra við þá: „Ef við höfum ekki um annað að velja gerið þá þetta: Fyllið sekki ykkar af bestu afurðum landsins og færið manninum að gjöf:+ lítið eitt af balsami+ og hunangi, sólrósarkvoðu, kvoðuríkan börk,+ pistasíuhnetur og möndlur. 12 Takið með ykkur tvöfalda fjárhæð og farið aftur með peningana sem voru settir efst í pokana ykkar.+ Kannski var um mistök að ræða. 13 Takið bróður ykkar og farið aftur til mannsins. 14 Megi almáttugur Guð vekja með manninum meðaumkun í ykkar garð svo að hann leyfi hinum bróður ykkar og Benjamín að fara með ykkur heim. En ef svo fer að ég missi syni mína þá fer sem fer.“+

15 Mennirnir tóku gjöfina og tvöfalda fjárhæð og lögðu af stað til Egyptalands með Benjamín. Þar gengu þeir aftur á fund Jósefs.+ 16 Þegar Jósef sá að Benjamín var með þeim sagði hann við ráðsmann sinn: „Farðu með mennina inn í húsið, slátraðu dýrum og eldaðu mat því að mennirnir eiga að borða með mér hádegisverð.“ 17 Maðurinn gerði þegar í stað eins og Jósef sagði+ og fór með þá inn í hús hans. 18 En mennirnir urðu hræddir þegar þeir voru leiddir þangað og sögðu: „Það er vegna peninganna sem voru settir aftur í pokana okkar í fyrra skiptið að við erum leiddir hingað. Nú ætla þeir að ráðast á okkur og gera okkur að þrælum og taka asna okkar!“+

19 Þeir sneru sér þá að ráðsmanni Jósefs við inngang hússins 20 og sögðu: „Afsakið, herra. Við komum hingað í fyrra skiptið til að kaupa vistir.+ 21 En þegar við komum á gististað og opnuðum pokana okkar sáum við að peningar hvers og eins voru efst í poka hans, öll upphæðin,+ og nú erum við komnir til að skila peningunum. 22 Og við erum auk þess með peninga til að kaupa vistir. Við vitum ekki hver kom peningunum fyrir í pokunum.“+ 23 „Engar áhyggjur,“ svaraði ráðsmaðurinn. „Þið hafið ekkert að óttast. Guð ykkar og Guð föður ykkar lét fjársjóð í sekki ykkar. Peningarnir ykkar rötuðu í mínar hendur.“ Síðan leiddi hann Símeon út til þeirra.+

24 Maðurinn fór með þá inn í hús Jósefs og gaf þeim vatn til að þvo fætur sína og fóður handa ösnunum. 25 Þeir tóku fram gjöfina+ til að hafa hana tilbúna þegar Jósef kæmi í hádeginu því að þeir höfðu heyrt að þeir ættu að borða hádegisverð þarna.+ 26 Þegar Jósef kom inn í húsið gáfu þeir honum gjöfina og féllu fram fyrir honum.+ 27 Hann spurði hvernig þeir hefðu það og bætti við: „Hvernig líður öldruðum föður ykkar sem þið minntust á? Er hann enn á lífi?“+ 28 „Þjóni þínum, föður okkar, líður vel,“ svöruðu þeir. „Hann er enn á lífi.“ Síðan hneigðu þeir sig og lutu honum.+

29 Þegar hann kom auga á Benjamín bróður sinn, son móður sinnar,+ spurði hann: „Er þetta yngsti bróðir ykkar sem þið sögðuð mér frá?“+ Hann bætti við: „Guð sýni þér velvild, sonur minn.“ 30 Jósef gat ekki lengur hamið tilfinningar sínar í garð bróður síns og var við það að bresta í grát. Hann rauk því burt og fór inn í herbergi þar sem hann gat verið út af fyrir sig og grét þar.+ 31 Eftir að hafa jafnað sig þvoði hann sér í framan, kom út aftur og sagði: „Berið fram matinn.“ 32 Þeir báru þá á borð, sér fyrir hann, sér fyrir þá og sér fyrir Egyptana sem voru með honum, en Egyptar geta ekki setið til borðs með Hebreum því að það er andstyggilegt í augum þeirra.+

33 Bræðrunum* var vísað til sætis andspænis honum eftir aldri, frá frumburðinum eftir frumburðarrétti hans+ til hins yngsta, og þeir horfðu undrandi hver á annan. 34 Hann sendi skammta frá sínu borði til þeirra en skammtur Benjamíns var fimm sinnum stærri en hinna.+ Og þeir átu og drukku með honum þar til þeir urðu saddir.

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila