Síðari Kroníkubók
14 Abía var lagður til hvíldar hjá forfeðrum sínum og jarðaður í Davíðsborg.+ Asa sonur hans varð konungur eftir hann. Á hans dögum var friður í landinu í tíu ár.
2 Asa gerði það sem var gott og rétt í augum Jehóva Guðs síns. 3 Hann fjarlægði útlendu ölturun+ og fórnarhæðirnar, mölvaði helgisúlurnar+ og hjó niður helgistólpana.*+ 4 Auk þess skipaði hann Júdamönnum að leita Jehóva, Guðs forfeðra sinna, og fylgja lögunum og boðorðunum. 5 Hann fjarlægði fórnarhæðirnar og reykelsisstandana+ úr öllum borgum Júda, og friður hélst í ríkinu undir hans stjórn. 6 Hann reisti víggirtar borgir í Júda+ þar sem friður var í landinu. Enginn háði stríð við hann á þessum árum því að Jehóva veitti honum frið.+ 7 Hann sagði við Júdamenn: „Reisum þessar borgir og víggirðum þær með múrum og turnum,+ hliðum og slagbröndum. Landið er enn á okkar valdi því að við höfum leitað Jehóva Guðs okkar. Við höfum leitað hans og hann hefur veitt okkur frið allt um kring.“ Þeir byggðu og það gekk vel.+
8 Í her Asa voru 300.000 menn frá Júda vopnaðir stórum skjöldum og spjótum. Og frá Benjamín voru 280.000 stríðskappar sem báru litla skildi* og boga.+
9 Sera frá Eþíópíu hélt nú á móti þeim með milljón manna herlið og 300 stríðsvagna.+ Þegar hann kom til Maresa+ 10 hélt Asa út á móti honum og þeir fylktu liði sínu í Sefatadal við Maresa. 11 Asa hrópaði til Jehóva Guðs síns:+ „Jehóva, þú getur hjálpað hverjum sem er, hvort sem þeir eru máttugir* eða máttvana.+ Hjálpaðu okkur, Jehóva Guð okkar, því að við treystum á* þig+ og í þínu nafni höfum við farið á móti þessum fjölmenna her.+ Jehóva, þú ert Guð okkar. Láttu ekki dauðlega menn sigra þig.“+
12 Þá sigraði Jehóva Eþíópíumenn frammi fyrir Asa og frammi fyrir Júda, og Eþíópíumenn lögðu á flótta.+ 13 Asa og menn hans eltu þá alla leið til Gerar+ og Eþíópíumenn féllu þar til enginn þeirra var eftir á lífi. Jehóva og her hans gersigruðu þá. Júdamenn tóku síðan gríðarmikið herfang. 14 Auk þess unnu þeir allar borgirnar í nágrenni Gerar því að þær voru gripnar hræðslu við Jehóva. Þeir rændu allar borgirnar því að þar var mikinn ránsfeng að fá. 15 Þeir réðust einnig á tjöld hjarðmanna og tóku mikinn fjölda sauðfjár og úlfalda. Síðan sneru þeir aftur heim til Jerúsalem.