Sálmur
Maskíl.* Bæn eftir Davíð þegar hann var í hellinum.+
142 Ég hrópa til Jehóva á hjálp,+
ég sárbæni Jehóva um að vera mér góður.
2 Ég úthelli áhyggjum mínum fyrir honum,
ég segi honum frá örvæntingu minni+
3 þegar kraftar mínir þverra.*
Þá vakir þú yfir vegi mínum.+
Á götunni sem ég geng
hafa þeir lagt gildru fyrir mig.
Ég get hvergi flúið,+
enginn skiptir sér af mér.
5 Ég hrópa til þín á hjálp, Jehóva.
6 Heyrðu þegar ég hrópa á hjálp
því að ég er í mikilli neyð.
Bjargaðu mér frá þeim sem ofsækja mig+
því að þeir eru sterkari en ég.
7 Frelsaðu mig úr dýflissunni
svo að ég geti lofað nafn þitt.
Megi hinir réttlátu safnast kringum mig
því að þú ert mér góður.