Sálmur
Söngljóð eftir Davíð.
108 Ég er staðfastur í hjarta, Guð minn.
Ég vil syngja og spila af allri sál.*+
2 Vaknaðu, lýra, og þú líka, harpa.+
Ég ætla að vekja morgunroðann.
3 Ég lofa þig, Jehóva, meðal þjóðflokka
og syng þér lof* meðal þjóðanna
4 því að tryggur kærleikur þinn er mikill og nær allt til himins+
og trúfesti þín upp til skýjanna.
5 Guð, hefðu þig hátt yfir himininn,
dýrð þín blasi við um alla jörð.+
6 Frelsaðu okkur með hægri hendi þinni og svaraðu mér
svo að þeir sem þú elskar bjargist.+
7 Guð hefur talað í heilagleika* sínum:
8 Gíleað+ tilheyrir mér og Manasse einnig,
Efraím er hjálmurinn á höfði mér,*+
Júda er veldissproti minn.+
9 Móab er þvottaskál mín.+
10 Hver leiðir mig til hinnar víggirtu borgar?
Hver fer með mig alla leið til Edóms?+
11 Ert það ekki þú, Guð, þú sem hefur hafnað okkur,
þú sem ferð ekki lengur út með hersveitum okkar?+