Jobsbók
26 Job svaraði:
2 „Þú hefur aldeilis hjálpað hinum þróttlausa
og bjargað þeim sem er máttvana!+
3 Mikið hefurðu gefið hinum óvitra góð ráð!+
Þú hefur verið óspar á að miðla visku þinni.*
4 Við hvern ertu að reyna að tala?
Hver innblés þér að segja það sem þú segir?*
5 Þeir sem liggja máttvana í dauðanum skjálfa,
þeir eru jafnvel neðar en vötnin og íbúar þeirra.
9 Hann hylur hásæti sitt,
breiðir ský sín yfir það.+
11 Stoðir himinsins skjálfa,
þær skelfast ávítur hans.
13 Við andardrátt* hans verður himinninn heiðskír,
með hendi sinni leggur hann hraðskreiðan höggorminn í gegn.
14 Þetta eru bara ystu mörk verka hans,+
aðeins lágt hvísl heyrist um hann!
Hver skilur þá drynjandi þrumu hans?“+