Sálmur
Eftir Davíð. Söngljóð.
24 Jörðin og allt sem á henni er tilheyrir Jehóva,+
landið og þeir sem í því búa.
2 Hann grundvallaði hana á hafinu,+
festi hana á fljótunum.
3 Hver fær að ganga upp á fjall Jehóva+
og hver fær að standa á hans helga stað?
4 Sá sem hefur saklausar hendur og hreint hjarta,+
hefur ekki unnið rangan eið við mig*
né svarið sviksamlega.+
6 Þetta er kynslóðin sem leitar hans,
sækist eftir velþóknun þinni,* Guð Jakobs. (Sela)
7 Lyftið höfðum ykkar, þið hlið,+
opnist,* þið fornu dyr,
svo að hinn dýrlegi konungur megi ganga inn.+
8 Hver er þessi dýrlegi konungur?
10 Hver er þessi dýrlegi konungur?
Jehóva hersveitanna – hann er hinn dýrlegi konungur.+ (Sela)