Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • 1. Mósebók 16
  • Biblían – Nýheimsþýðingin

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

1. Mósebók – yfirlit

      • Hagar og Ísmael (1–16)

1. Mósebók 16:1

Millivísanir

  • +1Mó 15:2, 3
  • +Ga 4:25

1. Mósebók 16:2

Millivísanir

  • +1Mó 30:1, 3

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn (almenn útgáfa),

    Nr. 5 2017 bls. 12-13

    Varðturninn,

    1.2.2004, bls. 29

1. Mósebók 16:4

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn (almenn útgáfa),

    Nr. 5 2017 bls. 13-14

1. Mósebók 16:6

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn (almenn útgáfa),

    Nr. 5 2017 bls. 13-14

1. Mósebók 16:7

Millivísanir

  • +1Mó 25:17, 18; 2Mó 15:22

1. Mósebók 16:10

Millivísanir

  • +1Mó 17:20; 25:13–16; 1Kr 1:29–31

1. Mósebók 16:11

Neðanmáls

  • *

    Sem þýðir ‚Guð heyrir‘.

1. Mósebók 16:12

Neðanmáls

  • *

    Eða „ónagri“, tegund villiasna. Sumir telja hins vegar að hér sé átt við sebrahest. Vísar líklega til sjálfstæðisanda.

  • *

    Eða hugsanl. „eiga í fjandskap við alla bræður sína“.

1. Mósebók 16:13

Neðanmáls

  • *

    Orðrétt „ákallaði hún nafn“.

Millivísanir

  • +Okv 15:3

1. Mósebók 16:14

Neðanmáls

  • *

    Sem þýðir ‚brunnur hins lifandi sem sér mig‘.

1. Mósebók 16:15

Millivísanir

  • +1Mó 21:9; Ga 4:22, 24

Almennt

1. Mós. 16:11Mó 15:2, 3
1. Mós. 16:1Ga 4:25
1. Mós. 16:21Mó 30:1, 3
1. Mós. 16:71Mó 25:17, 18; 2Mó 15:22
1. Mós. 16:101Mó 17:20; 25:13–16; 1Kr 1:29–31
1. Mós. 16:13Okv 15:3
1. Mós. 16:151Mó 21:9; Ga 4:22, 24
  • Biblían – Nýheimsþýðingin
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • 14
  • 15
  • 16
Biblían – Nýheimsþýðingin
1. Mósebók 16:1–16

Fyrsta Mósebók

16 Saraí eiginkona Abrams hafði ekki alið honum börn.+ En hún átti egypska þjónustustúlku sem hét Hagar.+ 2 Saraí sagði því við Abram: „Jehóva hefur meinað mér að eignast börn. Ég bið þig að leggjast með þjónustustúlku minni. Kannski eignast ég barn með hjálp hennar.“+ Og Abram hlustaði á Saraí. 3 Abram hafði búið í tíu ár í Kanaanslandi þegar Saraí kona hans gaf honum Hagar, egypska þjónustustúlku sína, fyrir konu. 4 Hann hafði kynmök við Hagar og hún varð barnshafandi. Þegar henni varð ljóst að hún gekk með barn fór hún að fyrirlíta húsmóður sína.

5 Þá sagði Saraí við Abram: „Það er þér að kenna að farið er svona illa með mig. Ég lét þjónustustúlku mína í faðm þinn en þegar hún komst að því að hún var ófrísk fór hún að fyrirlíta mig. Jehóva dæmi milli mín og þín.“ 6 Abram sagði við Saraí: „Þú ert húsmóðir hennar. Gerðu við hana það sem þú telur best.“ Þá niðurlægði Saraí hana svo að hún flúði frá henni.

7 Engill Jehóva fann hana síðar við vatnslind í óbyggðunum, við lindina á veginum til Súr.+ 8 Hann spurði hana: „Hagar, þjónustustúlka Saraí, hvaðan kemurðu og hvert ertu að fara?“ Hún svaraði: „Ég hljópst á brott frá Saraí húsmóður minni.“ 9 Engill Jehóva sagði þá: „Snúðu aftur til húsmóður þinnar og beygðu þig undir vald hennar.“ 10 Engill Jehóva bætti við: „Ég geri afkomendur þína svo marga að ekki verður hægt að telja þá.“+ 11 Engill Jehóva sagði einnig við hana: „Þú ert barnshafandi og munt fæða son. Þú skalt láta hann heita Ísmael* því að Jehóva hefur heyrt harmakvein þín. 12 Hann verður eins og villiasni.* Hönd hans verður upp á móti öllum og hönd hvers manns verður á móti honum. Hann mun búa andspænis öllum bræðrum sínum.“*

13 Síðan bað hún til* Jehóva sem hafði talað við hana. Hún sagði: „Þú ert Guð sem sérð,“+ því að hún hugsaði með sér: „Hef ég nú séð hann sem sér mig?“ 14 Þess vegna heitir brunnurinn Beer Lahaj Róí.* (Hann er á milli Kades og Bered.) 15 Hagar ól Abram son og Abram nefndi hann Ísmael.+ 16 Abram var 86 ára þegar Hagar fæddi Ísmael.

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila