Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • 1. Mósebók 40
  • Biblían – Nýheimsþýðingin

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

1. Mósebók – yfirlit

      • Jósef ræður drauma í fangelsinu (1–19)

        • „Er það ekki Guðs að ráða drauma?“ (8)

      • Afmælisveisla faraós (20–23)

1. Mósebók 40:1

Neðanmáls

  • *

    Embættismaður við hirð konungs sem skenkti honum vín og aðra drykki.

Millivísanir

  • +1Mó 40:11

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    1.3.2015, bls. 13

1. Mósebók 40:2

Millivísanir

  • +1Mó 40:20–22

1. Mósebók 40:3

Millivísanir

  • +1Mó 37:36
  • +1Mó 39:20; Sl 105:17, 18

1. Mósebók 40:4

Millivísanir

  • +1Mó 39:22

1. Mósebók 40:7

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    1.3.2015, bls. 13

1. Mósebók 40:8

Millivísanir

  • +1Mó 41:15, 16; Dan 2:28, 45

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn,

    1.3.2015, bls. 13

    1.1.2012, bls. 12-13

1. Mósebók 40:13

Neðanmáls

  • *

    Orðrétt „hefur faraó upp höfuð þitt“.

Millivísanir

  • +1Mó 41:12, 13
  • +1Mó 40:20, 21

1. Mósebók 40:14

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn (námsútgáfa),

    4.2017, bls. 20-21

1. Mósebók 40:15

Neðanmáls

  • *

    Orðrétt „gryfju; pytt“.

Millivísanir

  • +1Mó 37:28
  • +1Mó 39:7, 8

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Varðturninn (námsútgáfa),

    1.2023, bls. 16

    Varðturninn (námsútgáfa),

    4.2017, bls. 20-21

    Varðturninn,

    1.1.2015, bls. 14-15

1. Mósebók 40:19

Neðanmáls

  • *

    Orðrétt „hefja höfuð þitt af þér“.

Millivísanir

  • +1Mó 40:20, 22

1. Mósebók 40:20

Neðanmáls

  • *

    Orðrétt „hóf upp höfuð yfirdrykkjarþjónsins og yfirbakarans“.

Millivísanir

  • +Mr 6:21

Efnislykill

  • Efnislykillinn

    Von um bjarta framtíð, kafli 44

    Varðturninn,

    1.11.1998, bls. 31

1. Mósebók 40:22

Millivísanir

  • +1Mó 40:8

1. Mósebók 40:23

Millivísanir

  • +1Mó 40:14

Almennt

1. Mós. 40:11Mó 40:11
1. Mós. 40:21Mó 40:20–22
1. Mós. 40:31Mó 37:36
1. Mós. 40:31Mó 39:20; Sl 105:17, 18
1. Mós. 40:41Mó 39:22
1. Mós. 40:81Mó 41:15, 16; Dan 2:28, 45
1. Mós. 40:131Mó 41:12, 13
1. Mós. 40:131Mó 40:20, 21
1. Mós. 40:151Mó 37:28
1. Mós. 40:151Mó 39:7, 8
1. Mós. 40:191Mó 40:20, 22
1. Mós. 40:20Mr 6:21
1. Mós. 40:221Mó 40:8
1. Mós. 40:231Mó 40:14
  • Biblían – Nýheimsþýðingin
  • 1
  • 2
  • 3
  • 4
  • 5
  • 6
  • 7
  • 8
  • 9
  • 10
  • 11
  • 12
  • 13
  • 14
  • 15
  • 16
  • 17
  • 18
  • 19
  • 20
  • 21
  • 22
  • 23
Biblían – Nýheimsþýðingin
1. Mósebók 40:1–23

Fyrsta Mósebók

40 Nokkru síðar brutu drykkjarþjónn*+ Egyptalandskonungs og bakarinn gegn herra sínum, konunginum. 2 Faraó reiddist þá báðum hirðmönnum sínum, yfirdrykkjarþjóninum og yfirbakaranum,+ 3 og lét varpa þeim í fangelsið í húsi lífvarðarforingjans,+ fangelsið þar sem Jósef var haldið föngnum.+ 4 Lífvarðarforinginn fól Jósef að vera hjá þeim og þjóna þeim,+ og þeir sátu í fangelsinu um nokkurn tíma.

5 Nótt eina í fangelsinu dreymdi þá sinn drauminn hvorn, drykkjarþjóninn og bakara Egyptalandskonungs, en draumarnir höfðu hvor sína merkinguna. 6 Þegar Jósef kom inn til þeirra morguninn eftir sá hann að þeir voru daufir í dálkinn. 7 „Hvers vegna eruð þið svona daprir í bragði í dag?“ spurði hann þá hirðmenn faraós sem sátu með honum í haldi í húsi húsbónda hans. 8 „Okkur dreymdi báða draum,“ svöruðu þeir, „en hér er enginn sem getur ráðið draumana.“ Jósef sagði þá: „Er það ekki Guðs að ráða drauma?+ Segið mér hvað ykkur dreymdi.“

9 Yfirdrykkjarþjónninn sagði þá Jósef draum sinn: „Mig dreymdi að vínviður væri fyrir framan mig. 10 Á honum voru þrjár greinar og um leið og þær skutu frjóknöppum sprungu blóm hans út og klasarnir báru þroskuð vínber. 11 Ég hélt á bikar faraós, tók vínberin og kreisti safann úr þeim í bikarinn. Síðan rétti ég faraó bikarinn.“ 12 Jósef sagði þá við hann: „Draumurinn merkir þetta: Greinarnar þrjár merkja þrjá daga. 13 Eftir þrjá daga leysir faraó þig úr haldi* og lætur þig endurheimta fyrra embætti þitt.+ Þú munt aftur fá að rétta faraó bikarinn eins og þú varst vanur þegar þú varst drykkjarþjónn hans.+ 14 En mundu eftir mér þegar gæfan snýst þér í hag. Sýndu mér tryggan kærleika og minnstu á mig við faraó svo að ég komist út héðan. 15 Mér var rænt úr landi Hebrea+ og varpað hér í fangelsi* þótt ég væri alsaklaus.“+

16 Þegar yfirbakarinn heyrði að ráðning draumsins var góð sagði hann við Jósef: „Mig dreymdi líka draum. Ég var með þrjár körfur af hvítu brauði á höfðinu. 17 Í efstu körfunni var alls kyns brauðmeti handa faraó og fuglar átu það úr körfunni á höfðinu á mér.“ 18 Þá sagði Jósef: „Draumurinn merkir þetta: Körfurnar þrjár merkja þrjá daga. 19 Eftir þrjá daga lætur faraó hálshöggva þig* og hengja þig á staur, og fuglarnir munu éta hold þitt.“+

20 Þriðji dagurinn reyndist vera afmælisdagur+ faraós. Þá sló hann upp veislu fyrir alla þjóna sína og leysti úr haldi bæði yfirdrykkjarþjóninn og yfirbakarann* í viðurvist þeirra. 21 Hann lét drykkjarþjóninn endurheimta fyrri stöðu sína svo að hann fékk aftur að rétta faraó bikarinn, 22 en lét hengja yfirbakarann, rétt eins og Jósef hafði sagt þegar hann réð drauma þeirra.+ 23 En yfirdrykkjarþjónninn mundi ekki eftir Jósef heldur gleymdi honum.+

Íslensk rit (1985-2025)
Útskrá
Innskrá
  • íslenska
  • Deila
  • Stillingar
  • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
  • Notkunarskilmálar
  • Persónuverndarstefna
  • Persónuverndarstillingar
  • JW.ORG
  • Innskrá
Deila