Sálmur
Til tónlistarstjórans. Jedútún.*+ Söngljóð eftir Davíð.
Ég vil múlbinda munn minn+
þegar illmenni eru nálæg.“
3 Hjartað brann í brjósti mér,
eldurinn brann heitar því meira sem ég hugsaði.*
Að lokum sagði ég:
4 „Jehóva, hjálpaðu mér að skilja hvenær endalok mín koma
og hve margir dagar mínir eru+
svo að mér verði ljóst hve ævi mín er stutt.
Maðurinn er ekkert nema andgustur,+ jafnvel þótt hann virðist standa styrkum fótum. (Sela)
6 Mennirnir ganga um eins og skuggi,
þeir eru á sífelldum þönum* til einskis,
sanka að sér auðæfum án þess að vita hverjir fá að njóta þeirra.+
7 Eftir hverju get ég þá vonast, Jehóva?
Þú ert mín eina von.
8 Frelsaðu mig frá öllum syndum mínum,+
láttu ekki heimskingja hæðast að mér.
10 Léttu af mér plágunni sem þú lagðir á mig,
ég er að bugast undan höggum handar þinnar.
11 Þú agar manninn með því að refsa honum fyrir syndir hans,+
eyðir dýrgripum hans eins og mölur eyðir klæðum.
Já, maðurinn er ekkert nema andgustur.+ (Sela)
12 Heyrðu bæn mína, Jehóva,
hlustaðu þegar ég hrópa á hjálp.+
Láttu tár mín ekki fram hjá þér fara
því að fyrir þér er ég bara útlendingur,+
ferðalangur sem á leið hjá, rétt eins og allir forfeður mínir.+
13 Horfðu ekki svona reiðilega á mig svo að ég geti tekið gleði mína á ný
áður en ég dey og er ekki lengur til.“