Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • g 1.15 bls. 16
  • „Áhrifaríkur minnisvarði“

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • „Áhrifaríkur minnisvarði“
  • Vaknið! – 2015
  • Svipað efni
  • Stríð
    Vaknið! – 2017
  • Von
    Vaknið! – 2018
  • Kynþáttamisrétti
    Vaknið! – 2014
  • Loforð sem munu rætast
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva (almenn útgáfa) – 2018
Sjá meira
Vaknið! – 2015
g 1.15 bls. 16
Friðarminnisvarðinn í Hírósíma, Genbaku Dome

„Áhrifaríkur minnisvarði“

AUSTANMEGIN við Motoyasu-ána í Hírósíma í Japan er bygging sem legið hefur í rústum frá árinu 1945. Hún hefur enn ekki verið endurbyggð 70 árum seinna. Hvers vegna ekki?

Lokið var við gerð þessa þriggja hæða múrsteinshúss árið 1915. Þetta var hús iðnaðar- og verslunarráðs og í því voru haldnar sýningar til að efla iðnað. En það breyttist allt klukkan korter yfir átta að morgni dags 6. ágúst 1945. Þá sprakk fyrsta atómsprengjan sem notuð var í hernaði. Hún sprakk í um 550 metra hæð yfir borginni og næstum því beint fyrir ofan verslunarráðið. Allir í húsinu dóu samstundis. Grind hússins hrundi þó ekki.

Í óbreyttu ástandi er byggingin „áhrifaríkur minnisvarði um hið mesta eyðingarafl sem maðurinn hefur fundið upp“, segir í grein frá UNESCO.a Árið 1996 var byggingunni bætt inn á heimsminjaskrá UNESCO og er kölluð friðarminnisvarðinn í Hírósíma.

Það er sorglegt að slíkir minnisvarðar skuli ekki binda enda á stríð sem eiga sér yfirleitt stað vegna græðgi manna, þjóðernishyggju eða kynþátta- og trúarhaturs. En verða þá stríð alltaf hluti af lífinu?

Biblían segir að svo verði ekki. „[Guð] stöðvar stríð til endimarka jarðar,“ segir í Sálmi 46:10. „[Hann] brýtur bogann, mölvar spjótið, brennir skildi í eldi.“ Þegar þar að kemur mun Guð kollvarpa stjórnum manna og koma á sinni eigin stjórn yfir öllum heiminum. Jesú hefur verið falið að fara með völd sem „konungur konunga“ í ríki Guðs. – Opinberunarbókin 11:15; 19:16.

Þá verða minnisvarðar um fáránleika styrjalda óþarfir. „Hins fyrra verður ekki minnst framar og það skal engum í hug koma.“ (Jesaja 65:17) Þær sorgir og þjáningar, sem hrjá okkur núna, verða liðin tíð.

a Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila