Dagur sem ber að minnast
Kvöldið fyrir dauða sinn rétti Jesús postulum sínum ósýrt brauð og vínbikar og sagði þeim að borða og drekka. Hann sagði jafnframt við þá: „Gjörið þetta í mína minningu.“ — Lúkas 22:19.
Í ár verður þessa atburðar minnst eftir sólsetur fimmtudaginn 1. apríl. Vottar Jehóva um heim allan safnast saman þetta sérstaka kvöld til að halda þessa minningarhátíð á sama hátt og Jesús fyrirskipaði. Þú ert hjartanlega velkominn. Vottar Jehóva í heimabyggð þinni veita nánari upplýsingar um hvar og hvenær þessi sérstaka samkoma verður haldin.