Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • w07 1.3. bls. 3
  • Jörðin gimsteinn í geimnum

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Jörðin gimsteinn í geimnum
  • Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2007
  • Svipað efni
  • Hinn mikilfenglegi alheimur
    Lífið — varð það til við þróun eða sköpun?
  • Hvernig varð alheimurinn til? — enn ágreiningsmál
    Er til skapari sem er annt um okkur?
  • Sólin er sérstæð
    Vaknið! – 2001
  • Sólkerfið — hvernig varð það til?
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2007
Sjá meira
Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2007
w07 1.3. bls. 3

Jörðin gimsteinn í geimnum

STJÖRNUFRÆÐINGAR vita að heimili okkar, jörðin, er ekki nema örsmátt korn í óravíddum alheimsins. Hvergi annars staðar í alheiminum hefur fundist líf. Hvergi nema á jörðinni er að finna nákvæmlega réttar aðstæður til að líf geti þrifist.

Við getum líka notið þess að lifa á þessari fallegu jarðarkúlu. Er ekki yndislegt að finna sólargeislana ylja sér á köldum degi? Er ekki hrífandi að horfa á litfagurt sólsetur eða sólarupprás? En sólin gerir auðvitað meira en að gæla við skynfæri okkar því að tilvera okkar mannanna er algerlega háð henni.

Um milljónir ára hefur aðdráttarafl sólarinnar haldið jörðinni og öðrum reikistjörnum á stöðugri sporbraut. Og eins og við vitum er allt sólkerfið á hringferð um miðju Vetrarbrautarinnar. Sólin okkar er þó aðeins ein af rúmlega 100 milljörðum stjarna í Vetrarbrautinni sem fara þessa hringferð.

Vetrarbrautin okkar tilheyrir þyrpingu sem í eru um 35 vetrarbrautir. Í stórum þyrpingum geta verið þúsundir vetrarbrauta. Sennilega væri sólkerfið okkar ekki eins stöðugt ef það væri í miklu stærri og þéttari vetrarbrautaþyrpingu. Fáir staðir í alheiminum „henta flóknu lífkerfi jafn vel og svæðið þar sem við búum“, að því er Guillermo Gonzalez og Jay W. Richards segja í bókinni The Privileged Planet.

Er lífið hér á jörð til komið af einskærri tilviljun? Varð það til af hreinni hendingu í „miklahvelli“? Eða hefur lífið á þessari undurfögru reikistjörnu einhvern háleitari tilgang?

Margir hafa komist að þeirri niðurstöðu að jörðin hafi verið sérhönnuð til að viðhalda lífi.a Endur fyrir löngu vakti hebreskt skáld athygli á himni og jörð í ljóði þar sem segir: „Þegar ég horfi á himininn, verk handa þinna, tunglið og stjörnurnar, er þú hefir skapað, hvað er þá maðurinn?“ (Sálmur 8:4, 5) Þetta ljóðskáld trúði að það hlyti að vera til skapari. Er það rökrétt ályktun á tækniöld?

[Neðanmáls]

a Sjá Sálmana í Biblíunni, einkum Sálm 8.

[Rammi/mynd á blaðsíðu 3]

„Úr fjarlægð séð tindrar jörðin eins og blár gimsteinn í dimmum geimnum,“ segir í The Illustrated Science Encyclopedia — Amazing Planet Earth.

[Rétthafi]

Jörðin: U.S. Fish & Wildlife Service, Washington, D.C./NASA

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila