Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 8.95 bls. 7
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 1995
Ríkisþjónusta okkar – 1995
km 8.95 bls. 7

Tilkynningar

◼ Rit sem nota skal í ágúst: Hvern sem er af eftirtöldum 32 blaðsíðna bæklingum: Andar hinna dánu, Ber Guð í raun umhyggju fyrir okkur?, Hver er tilgangur lífsins?, Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, „Sjá, ég gjöri alla hluti nýja,“ Stjórnin sem koma mun á paradís og Ættum við að trúa á þrenninguna? September: Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð. Leitast skal við að koma af stað biblíunámum með áhugasömu fólki. Október: Áskrift að Varðturninum og/eða Vaknið! Leggið ykkur sérstaklega fram við að útbreiða eintök af blöðunum. Bjóða mætti áskrift í endurheimsóknum.

◼ Nægjanlegar birgðir af eyðublöðum til að nota á þjónustuárinu 1996 verða sendar til hvers safnaðar á næstunni. Þessum eyðublöðum skyldi ekki sóað. Þau skal nota aðeins í þeim tilgangi sem þeim er ætlaður.

◼ Hver söfnuður mun fá þrjú eintök af ritatalningareyðublaðinu (S(d)-18). Ritari safnaðarins ætti að hafa fund með bókaþjóninum snemma í ágúst og ákveða dag í lok mánaðarins til að telja bókabirgðir safnaðarins. Raunveruleg talning verður að eiga sér stað og niðurstaðan færð á eyðublaðið. Blaðaþjónninn skyldi gefa upp hversu mörg blöð eru tiltæk í lok mánaðarins. Sendið frumritið til Félagsins ekki síðar en 6. september. Haldið eftir afriti fyrir skjalasafn safnaðarins. Þriðja eintakið má nota sem vinnublað. Ritarinn ætti að hafa umsjón með talningunni og umsjónarmaður í forsæti ætti að yfirfara hið útfyllta eyðublað. Ritarinn og umsjónarmaður í forsæti munu undirrita það.

◼ Söfnuðir geta pantað Dagatal votta Jehóva 1996 og bæklinginn Rannsökum daglega Ritningarnar 1996 á pöntunareyðublaðinu í september. Dagatalið verður eins og áður fáanlegt á allmörgum tungumálum en ekki á íslensku.

◼ Boðberar, sem hafa í hyggju að hefja starf sem reglulegir brautryðjendur 1. september 1995, ættu að sækja um án tafar. Umsóknir skyldu póstlagðar til Félagsins fyrir lok ágústmánaðar. Sjá viðaukann í Ríkisþjónustu okkar frá ágúst 1986 á ensku, tölugrein 21 til 26.

◼ Ritari safnaðarins mun taka saman þjónustuskýrslurnar til þess síðan að færa viðeigandi upplýsingar inn á S-10 eyðublaðið. Hann mun einnig leiðbeina vandlega hverjum þeim öldungi eða safnaðarþjóni sem kann að hafa verið fenginn til að aðstoða við þetta verkefni. Það mun tryggja að upplýsingarnar, sem þörf er á frá boðberakortunum (S-21), séu rétt meðhöndlaðar og skráðar. Útfylla skyldi S-10 eyðublaðið nákvæmlega og snyrtilega og starfsnefndin ætti að yfirfara það vandlega.

◼ Í næstu heimsókn farandhirðisins til safnaðanna mun hann flytja nýjan opinberan fyrirlestur sem ber heitið „Kennsla Guðs hrósar sigri um allan heim.“ Þetta er skuggamyndasýning þar sem fjallað er um þau umdæmismót með stefinu „Kennsla Guðs“ sem voru sérstök alþjóðamót og haldin voru á þjónustuárunum 1993 og 1994.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila