Til minnis vegna minningarhátíðar
Minningarhátíðin verður haldin laugardaginn 11. apríl og ættu öldungarnir að gefa eftirfarandi málum gaum:
◼ Þegar samkomutíminn er ákveðinn skal þess gætt að brauðið og vínið verði ekki borið fram fyrr en eftir sólsetur.
◼ Allir, þar með talinn ræðumaðurinn, eiga að fá nákvæmar upplýsingar um stund og stað hátíðarinnar.
◼ Útvega skal rétta tegund brauðs og víns og hafa til reiðu. — Sjá Varðturninn, 1. febrúar 1985, bls. 17.
◼ Koma skal með diska, glös, viðeigandi borð og borðdúk til salarins og setja fyrirfram á sinn stað.
◼ Hreinsa á ríkissalinn eða annan samkomustað rækilega fyrir hátíðina.
◼ Velja skal bræður til að hafa umsjón í sal og til að bera fram brauðið og vínið, og leiðbeina þeim fyrirfram um skyldustörf sín og hvernig þau skuli innt af hendi.
◼ Gera skal ráðstafanir til að brauðið og vínið verði borið fram fyrir smurða bræður og systur sem ekki geta verið viðstödd vegna veikinda.
◼ Þegar ráðgert er að halda fleiri en eina minningarhátíð í sama ríkissal ætti að vera góð samvinna á milli safnaða svo að forðast megi óþarfa örtröð í anddyri, á gangstéttum og á bílastæðum.