Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í janúar: Bókin Er til skapari sem er annt um okkur? eða Gefðu gaum að spádómi Daníelsbókar. Febrúar: Bókin Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? Einnig má bjóða bækurnar Fjölskyldulíf þitt gert hamingjuríkt, Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans. Mars: Bókin Þekking sem leiðir til eilífs lífs. Sérstakt átak verður gert í biblíunámsstarfinu. Apríl: Stök tölublöð af Varðturninum og Vaknið! Bjóðið Kröfubæklinginn með markmiðið að stofna biblíunámskeið.
◼ Öllum skírðum boðberum, sem viðstaddir verða á þjónustusamkomunni í vikunni er hefst 14. janúar, verður afhent yfirlýsingin Upplýsingar um læknismeðferð/Blóðgjöf óheimil og Nafnskírteini fyrir börn sín.
◼ Næsti opinberi fyrirlestur farandhirðis, þegar hann heimsækir söfnuðina eftir 1. febrúar, ber heitið „Að finna öryggi í hættulegum heimi.“
◼ Eins og tilkynnt var á landsmótinu 2001 verður brátt gefin út ný bók er nefnist Aflaðu þér menntunar í Boðunarskólanum. Til að byrja með verður bókin fáanleg á ensku og spænsku en fleiri tungumál bætast við smám saman. Söfnuðir geta sent inn pantanir á enskum og spænskum bókum með febrúar ritapöntuninni og á öðrum tungumálum jafnskjótt og tilkynnt er um þau í Ríkisþjónustunni.
◼ Söfnuðir ættu að gera ráðstafanir til að halda minningarhátíðina eftir sólsetur fimmtudaginn 28. mars næstkomandi. Brauðið og vínið má ekki bera fram fyrr en sól er sest enda þótt hefja megi flutning ræðunnar fyrir þann tíma. Sólsetur á Akureyri er kl. 19:54, á Selfossi kl. 20:03, í Reykjavík kl. 20:07 og í Keflavík kl. 20:09. Þótt æskilegt sé að hver söfnuður haldi eigin minningarhátíð er ekki víst að það sé alltaf gerlegt. Á stöðum þar sem nokkrir söfnuðir nota sama ríkissal getur einn söfnuður eða fleiri orðið sér úti um annað húsnæði þetta kvöld. Þar sem því verður við komið ættu minnst 40 mínútur að líða á milli samkoma svo að tími sé til að heilsa gestum, hvetja áhugasama og hafa fullt gagn af hátíðinni. Taka ber tillit til hugsanlegra umferðartafa, tryggja þarf að næg bílastæði séu fyrir hendi og að aðgengi sé gott. Öldungaráðið ætti að ákveða hvernig best sé að standa að málum í sínu byggðarlagi.
◼ Þegar umsjónarmaður í forsæti fær staðfestingu deildarskrifstofunnar á framlögum safnaðarins til alþjóðastarfsins og ríkissalasjóðsins í hverjum mánuði á hann að sjá til þess að hún sé lesin upp fyrir söfnuðinn með næstu reikningshaldsskýrslu.
◼ Eftirfarandi útgáfur koma núna út mánaðarlega en ekki hálfsmánaðarlega: Vaknið! á kínversku, kínversku (einfaldaðri) og súlú. Varðturninn á armensku.
◼ Vaknið! á síbemba kemur núna út ársfjórðungslega en ekki mánaðarlega.
◼ Frá og með janúarheftinu 2002 koma Varðturninn (hálfsmánaðarlega) og Vaknið! (mánaðarlega) út á bæði papíamentó (Curaçao) og papíamentó (Arúba).
◼ Frá og með 1. janúar 2002 kemur Varðturninn út mánaðarlega á máritíus-kreólsku.
◼ Ný rit fáanleg:
Bókin Spádómur Jesaja — ljós handa öllu mannkyni 2 (ip-2) — kínverska, kínverska (einfölduð), víetnamska.
Efnisskráin Watch Tower Publications Index 1986-2000 (dx86-00) — enska.
Smáritið The Greatest Name (fyrir múslíma) (Mesta nafnið) (T-72) — enska.
Smáritið Who Are Jehovah’s Witnesses? (Hverjir eru Vottar Jehóva?) (T-73) — enska.
Smáritið Is Hellfire a Part of Divine Justice? (Er vítiseldur þáttur í réttvísi Guðs?) (T-74) — enska.