Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í janúar: Fjölskyldulíf þitt gert hamingjuríkt, Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans. Einnig má bjóða Er til skapari sem er annt um okkur? Febrúar: Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? Mars: Þekking sem leiðir til eilífs lífs. Sérstakt átak verður gert í biblíunámsstarfinu. Ef húsráðandi á þessa bók má bjóða Gefðu gaum að spádómi Daníelsbókar. Apríl: Varðturninn og Vaknið! Heimsækið aftur þá sem sýnt hafa áhuga, til dæmis þá sem voru viðstaddir minningarhátíðina eða einhverja aðra samkomu eða mót. Reynið í framhaldinu að hefja biblíunámskeið.
◼ Söfnuðir ættu að gera ráðstafanir til að halda minningarhátíðina eftir sólsetur sunnudaginn 4. apríl næstkomandi. Brauðið og vínið má ekki bera fram fyrr en sól er sest enda þótt hefja megi flutning ræðunnar fyrir þann tíma. Sólsetur á Akureyri er kl. 20:18, á Selfossi kl. 20:25, í Reykjavík kl. 20:29 og í Keflavík kl. 20:32. Engar aðrar samkomur en fyrir boðunarstarfið skulu haldnar þennan dag, og Varðturnsnámið þarf því að vera á öðrum tíma. Þótt æskilegt sé að hver söfnuður haldi minningarhátíðina út af fyrir sig er ekki víst að það sé alltaf gerlegt. Á stöðum þar sem nokkrir söfnuðir nota sama ríkissal getur einn söfnuður eða fleiri orðið sér úti um annað húsnæði þetta kvöld. Þar sem því verður við komið ættu minnst 40 mínútur að líða á milli samkoma svo að tími sé til að heilsa gestum, hvetja áhugasama og hafa fullt gagn af hátíðinni. Taka ber tillit til hugsanlegra umferðartafa, tryggja þarf að næg bílastæði séu fyrir hendi og að aðgengi sé gott. Öldungaráðið ætti að ákveða hvernig best sé að standa að málum í sínu byggðarlagi.