Upprifjun á efni Boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 30. ágúst 2004. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 5. júlí til 30. ágúst 2004. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]
ÞJÁLFUNARLIÐIR
1. Hvernig getum við fært rök fyrir von okkar „með hógværð og virðingu“? (1. Pét. 3:15, 16) [be bls. 192 gr. 2-4]
2. Hvers vegna er mikilvægt að tala af sannfæringu? (Rómv. 8:38, 39; 1. Þess. 1:5; 1. Pét. 5:12) [be bls. 194]
3. Hvernig birtist sannfæring okkar? [be bls. 195 gr. 3-bls. 196 gr. 4]
4. Hvað er nærgætni, hvers vegna er hún mikilvæg og hvernig getum við verið nærgætin en samt sýnt festu? (Rómv. 12:18) [be bls. 197]
5. Hvað íhugar nærgætinn maður áður en hann tekur til máls? (Orðskv. 25:11; Jóh. 16:12) [be bls. 199]
VERKEFNI NR. 1
6. Hvernig geta námsvenjur okkar og umræðuefni gefið til kynna hversu miklum framförum í sannleikanum við höfum tekið? [be bls. 74 gr. 3-bls. 75 gr. 2]
7. Hvað er átt við með að ‚kaupa upp hentugan tíma‘ og hvernig getum við gert það? (Ef. 5:16, NW) [wE02 15.11. bls. 23]
8. Hvernig kemur það skýrt fram í Ritningunni að allir menn eru jafnir frammi fyrir Guði og hvaða áhrif ætti það að hafa á boðunarstarf okkar? [w02 1.1. bls. 5, 7]
9. Hvað merkir nafnið Jehóva, hið einstæða nafn skaparans? [w02 1.2. bls. 5]
10. Hvers vegna var fórn Abels „betri fórn“ en Kains og hvaða lærdóm getum við dregið af því í sambandi við „lofgjörðarfórn“ okkar? (Hebr. 11:4; 13:15) [wE02 15.1. bls. 21 gr. 6-8]
VIKULEGUR BIBLÍULESTUR
11. Hvernig getur 3. Mósebók 18:3 komið í veg fyrir að við hættum að gera greinarmun á réttu og röngu? (Ef. 4:17-19) (wE02 1.2. bls. 29)
12. Hvað fyrirmynda ‚brauðin tvö‘ sem æðsti presturinn færði sem „veififórn“ á viknahátíðinni (hvítasunnu)? (3. Mós. 23:15-17) [w98 1.4. bls. 25 gr. 21]
13. Í hvaða skilningi myndu ‚lendar konunnar hjaðna‘ þegar hún hafði framið hjúskaparbrot eins og minnst er á í 5. kafla 4. Mósebókar? (4. Mós. 5:27) [w84 1.12. bls. 30]
14. Hvers vegna mæltu Mirjam og Aron gegn Móse vegna blálensku konunnar? (4. Mós. 12:1)
15. Hver var ‚bókin um bardaga Drottins‘? (4. Mós. 21:14)