Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í september: Er til skapari sem er annt um okkur? Einnig má bjóða Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? Október: Varðturninn og Vaknið! Þar sem áhuga er að finna má bjóða Kröfubæklinginn með það fyrir augum að hefja ný biblíunámskeið. Nóvember: Lærum af kennaranum mikla. Ef húsráðandi segist ekki eiga nein börn má bjóða Kröfubæklinginn. Notið bæklinginn til að hefja ný biblíunámskeið. Desember: Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Einnig mætti bjóða Biblíusögubókina mína eða Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð.
◼ Á þjónustusamkomu í desember verður farið yfir myndbandið No Blood — Medicine Meets the Challenge (Læknismeðferð án blóðgjafar — þörfinni svarað). Það er einnig fáanlegt á DVD sem hluti af myndasyrpu um læknismeðferð án blóðgjafar. Þessi DVD diskur hefur að geyma eftirfarandi myndir: Transfusion-Alternative Strategies — Simple, Safe, Effective (Læknismeðferð án blóðgjafar — einföld, örugg og áhrifarík); Transfusion-Alternative Health Care — Meeting Patient Needs and Rights (Læknismeðferð án blóðgjafar — þarfir og réttindi sjúklinga); og No Blood — Medicine Meets the Challenge (Læknismeðferð án blóðgjafar — þörfinni svarað). Á einum og sama diski er hægt að velja á milli ensku, frönsku, ítölsku, japönsku, portúgölsku, rússnesku, spænsku og þýsku. Myndbandið má að sjálfsögðu einnig panta á VHS-spólum á þessum og mörgum öðrum tungumálum.
◼ Afgreiða skal ný eintök af Varðturninum og Vaknið! til boðbera jafnskjótt og þau berast í ríkissalinn. Það gefur boðberum tækifæri til að kynna sér efni blaðanna áður en þeir bjóða þau í boðunarstarfinu.
◼ Þar sem fimm helgar eru í október væri kjörið að nota mánuðinn til aðstoðarbrautryðjandastarfs.
◼ Sérræðan fyrir minningarhátíðartímann árið 2005 verður flutt sunnudaginn 10. apríl. Tilkynnt verður síðar um stef ræðunnar. Ef farandhirðisheimsókn stendur yfir þessa helgi í einhverjum söfnuði skal flytja sérræðuna viku síðar. Sérræðuna á ekki að flytja í neinum söfnuði fyrir 10. apríl 2005.
◼ Söfnuðir geta pantað Rannsökum daglega ritningarnar fyrir árið 2005 á ritapöntunareyðublaðinu í október. Listi með tungumálum, sem dagstextabæklingurinn verður fáanlegur á, verður birtur í bréfinu „Tilkynning til allra safnaða“ sem er sent út reglulega.
◼ Öldungarnir eru minntir á að framfylgja leiðbeiningunum á blaðsíðu 28-31 í Varðturninum 1. september 1991 um brottrekna og þá sem hafa aðgreint sig en ætti að heimsækja.