Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • km 9.05 bls. 7
  • Tilkynningar

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Tilkynningar
  • Ríkisþjónusta okkar – 2005
Ríkisþjónusta okkar – 2005
km 9.05 bls. 7

Tilkynningar

◼ Ritatilboðið í september: Er til skapari sem er annt um okkur? Einnig má bjóða Lífið — varð það til við þróun eða sköpun? Október: Varðturninn og Vaknið! Þar sem áhuga er að finna má bjóða Kröfubæklinginn. Nóvember: Lærum af kennaranum mikla. Ef húsráðandi á engin börn má bjóða Þekkingarbókina eða smáritið Langar þig að vita meira um Biblíuna? Desember: Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Einnig mætti bjóða Biblíusögubókina mína eða Þú getur lifað að eilífu í paradís á jörð.

◼ Deildarskrifstofan afgreiðir ekki ritabeiðnir einstakra boðbera beint. Umsjónarmaður í forsæti ætti að láta lesa upp tilkynningu í hverjum mánuði áður en mánaðarleg ritapöntun safnaðarins er send til deildarskrifstofunnar svo að allir sem vilja geti pantað rit hjá bókaþjóninum. Vinsamlegast hafið í huga hvaða rit eru sérpöntunarvara.

◼ Öldungarnir eru minntir á að framfylgja leiðbeiningunum á blaðsíðu 28-31 í Varðturninum 1. september 1991 um þá sem eru brottreknir eða hafa aðgreint sig en hafa kannski hug á að koma inn í söfnuðinn á ný.

◼ Sérræðan eftir minningarhátíðina árið 2006 verður flutt sunnudaginn 30. apríl. Tilkynnt verður síðar um heiti ræðunnar. Ef farandhirðisheimsókn stendur yfir þessa helgi í einhverjum söfnuði skal flytja sérræðuna viku síðar. Sérræðuna á ekki að flytja í neinum söfnuði fyrir 30. apríl 2006.

◼ Þar sem fimm helgar eru í október væri kjörið að nota mánuðinn til aðstoðarbrautryðjandastarfs.

◼ Söfnuðir geta pantað innbundna árganga af Varðturninum og Vaknið! fyrir árið 2005 á næsta ritapöntunareyðublaði. Listi með tungumálum, sem árgangarnir verða fáanlegir á, verður birtur í bréfinu „Tilkynning til allra safnaða“ sem er sent út reglulega. Þetta er nýbreytni frá því sem hefur verið.

◼ Á þjónustuárinu 2006 mega allir, sem eru aðstoðarbrautryðjendur í þeim mánuði sem farandhirðirinn heimsækir söfnuðinn, vera viðstaddir fyrri helming brautryðjendafundarins sem haldinn er í farandhirðisvikunni. Við hvetjum alla sem geta mætt að nýta sér þetta sérstaka tækifæri.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila