Upprifjun á efni Boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 27. febrúar 2006. Umsjónarmaður skólans stjórnar 30 mínútna upprifjun á efni sem farið hefur verið yfir á tímabilinu 2. janúar til 27. febrúar 2006. [Athugið: Þegar engin tilvísun fylgir spurningu þarftu að leita sjálfur að heimildum til að finna svarið. — Sjá Boðunarskólabókina, bls. 36-7.]
ÞJÁLFUNARLIÐIR
1. Hvernig hjálpar Boðunarskólinn okkur að „bera fram lofgjörðarfórn fyrir Guð“ og „játa nafn hans“. (Hebr. 13:15) [be bls. 5 gr. 3–bls. 6 gr. 1]
2. Hvers vegna ættum við að leggja okkur fram um að lesa af nákvæmni? [be bls. 83 gr. 1–bls. 84 gr. 1]
3. Hvers vegna er mikilvægt að framsögn okkar sé skýr þegar við tölum og kennum? [be bls. 86 gr. 1-6]
4. Hvers vegna er réttur framburður mikilvægur og hvað þarf að hafa í huga? [be bls. 89 gr. 1–bls. 90 gr. 1, ásamt ramma]
5. Hvernig er hægt að bæta málfimina? [be bls. 94 gr. 4-5, ásamt ramma]
VERKEFNI NR. 1
6. Hvernig staðfestir 2. Kroníkubók 36:17-23 áreiðanleika biblíuspádóma? [si bls. 84 gr. 35]
7. Hvaða atburðarrás olli því að Gyðingar gátu snúið til heimalands síns árið 537 f.Kr. til þess að endurreisa hús Jehóva? [si bls. 85 gr. 1-3]
8. Hvernig styrkir Esrabók traust okkar til Jehóva og upphefur hann sem hinn sanna Guð? [si bls. 87 gr. 14, 18]
9. Af hverju er ‚tuttugasta ríkisár Artahsasta konungs‘ mikilvægt í tímatalsfræði Biblíunnar? (Nehem. 2:1, 5, 6, 11, 17, 18) [bls. 88 gr. 2, 5]
10. Hvernig er Nehemía gott fordæmi fyrir þjóna Guðs nú á dögum? [si bls. 90 gr. 16-17]
VIKULEGUR BIBLÍULESTUR
11. Höfðu hinir heimkomnu útlagar aðgang að úrím og túmmím sem notuð voru til að leita svara hjá Jehóva? (Esra. 2:61-63)
12. Af hverju voru margir Gyðingar í Babýlon tregir til að fara til Jerúsalem með Esra? (Esra. 7:28–8:20)
13. Hvernig var hægt að endurbyggja múrana með annarri hendi? (Nehem. 4:17, 18)
14. Nú voru trúnaðarbréf yfirleitt sett í innsiglaðan poka. Af hverju sendi Sanballat þá „opið bréf“ til Nehemía? (Nehem. 6:5)
15. Nehemía hafði áður ‚talið á‘ tignarmennina og yfirmennina en hvað gerði hann annað en að ‚telja á‘ Gyðinga fyrir að fara út af vegi dyggðarinnar? (Nehem. 13:25, 28)