Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í september: Hvað kennir Biblían? Leggið sérstaka áherslu á að hefja ný biblíunámskeið. Ef húsráðandi á bókina má sýna hvernig hún getur gagnast honum með því að kynna stuttlega hvernig biblíunámskeið fer fram. Október: Varðturninn og Vaknið! Sýnið smáritið Viltu vita svörin? þar sem áhuga er að finna og ræðið efni þess. Ef húsráðandi á það fyrir ætti að reyna að hefja biblíunámskeið. Nóvember: Hvað kennir Biblían? Ef húsráðandi á bókina fyrir má bjóða bækurnar Sannur friður og öryggi — hvernig? og Öryggi um allan heim undir stjórn Friðarhöfðingjans. Desember: Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Ef húsráðandi á börn má bjóða Lærum af kennaranum mikla.
◼ Sérræðan eftir minningarhátíðina árið 2010 verður flutt í vikunni sem hefst 12. apríl 2010. Tilkynnt verður síðar um heiti ræðunnar. Ef farandhirðisheimsókn stendur yfir þessa viku í einhverjum söfnuði skal flytja sérræðuna viku síðar. Sérræðuna á ekki að flytja í neinum söfnuði fyrir 12. apríl.