Tilkynningar
◼ September: Hvað kennir Biblían? Leggið sérstaka áherslu á að hefja ný biblíunámskeið í fyrstu heimsókn. Október: Varðturninn og Vaknið! Sýnið smáritið Viltu vita svörin? þar sem áhuga er að finna, ræðið efni þess og reynið að hefja biblíunámskeið. Nóvember: Sérstakt átak til að bjóða Biblían — hver er boðskapur hennar? Desember: Mesta mikilmenni sem lifað hefur. Bjóðið Lærum af kennaranum mikla ef börn eru á heimilinu.
◼ Sérræðan eftir minningarhátíðina árið 2011 verður flutt í vikunni sem hefst 25. apríl 2011. Tilkynnt verður síðar um heiti ræðunnar. Ef farandhirðisheimsókn stendur yfir þessa viku í einhverjum söfnuði skal flytja sérræðuna viku síðar. Ræðuna á ekki að flytja í neinum söfnuði fyrir 25. apríl.
◼ Í vikunni sem hefst 14. mars 2011 verður byrjað að fara yfir bókina Nálægðu þig Jehóva í safnaðarbiblíunáminu. Gætið þess að eiga nægar birgðir af bókinni í söfnuðinum.