Tilkynningar
◼ Ritatilboðið í apríl og maí: Varðturninn og Vaknið! Júní: Hvað kennir Biblían? Reynið að hefja biblíunámskeið í fyrstu heimsókn. Ef húsráðandi á bókina og þiggur ekki biblíunámskeið má bjóða Lífið - varð það til við þróun eða sköpun? Júlí: Einhver af eftirtöldum 32 síðna bæklingum: Nafn Guðs sem vara mun að eilífu, Vottar Jehóva - hverjir eru þeir? hverju trúa þeir? eða Hvað verður um okkur þegar við deyjum? Bjóðið bókina Hvað kennir Biblían? í endurheimsóknum og reynið að hefja biblíunámskeið.
◼ Á þjónustusamkomunni í vikunni fyrir umdæmismótið mætti rifja upp hvað þarf að hafa í huga þegar við erum viðstödd mótið. Einum eða tveimur mánuðum eftir umdæmismótið væri hægt að nota staðbundnar þarfir til að rifja upp atriði frá mótinu sem hafa reynst boðberum vel í boðunarstarfinu.
◼ Ef þú ætlar að sækja umdæmismót á ferðalögum þínum erlendis geturðu fundið gagnlegar upplýsingar á veðsíðunni jw.org. Smelltu á „lookup“ flipann og síðan á „convention“.