Upprifjun á efni Boðunarskólans
Farið verður yfir eftirfarandi spurningar í Boðunarskólanum í vikunni sem hefst 29. júní 2015. Tekið er fram í hvaða viku er fjallað um hvert atriði svo að við getum lesið okkur til um það þegar við undirbúum okkur fyrir skólann í hverri viku.
Hvað var rangt við það hvernig Míkal talaði við Davíð og hvaða lærdóm geta hjón dregið af því? (2. Sam. 6:20-23) [11. maí, w11 1.10. bls. 12 gr. 1]
Hvernig brást spámaðurinn Natan við leiðréttingu Jehóva þegar Natan hvatti Davíð til að byggja musteri fyrir Jehóva? (2. Sam. 7:2, 3) [11. maí, w12 15.2. bls. 24 gr. 6-7]
Hvers vegna sagði Natan dæmisöguna sem skráð er í 2. Samúelsbók 12:1-7 í stað þess að segja Davíð beint að hann hefði drýgt alvarlega synd? Hvernig hjálpar frásagan okkur að vera betri kennarar? [18. maí, w12 15.2. bls. 24 gr. 2-3]
Hvers vegna tókst Absalon að blekkja Ísraelsmenn og hvernig getum við varað okkur á fólki sem hagar sér eins og Absalon? (2. Sam. 15:6, Biblían 1981) [25. maí, w12 15.7. bls. 13 gr. 7]
Hvernig sá Jehóva fyrir þörfum Davíðs á mjög erfiðum tíma og hvað lærum við af því? (2. Sam. 17:27-29) [1. júní, w08 15.9. bls. 5-6 gr. 15-16]
Hvað getum við lært af fordæmi Davíðs í samskiptum hans við útlending að nafni Ittaí? (2. Sam. 18:2) [1. júní, w09 15.5. bls. 27, 28 gr. 7]
Hvernig geta hinir eldri í söfnuðinum haft gagn af fordæmi Barsillaí? (2. Sam. 19:33-40) [8. júní, w07 1.7. bls. 14 gr. 13]
Hvað sagði Davíð um trúfesti og hvað læra þjónar Jehóva af því? (2. Sam. 22:26) [15. júní, cl kafli 28 bls. 280 gr. 1-3]
Hvernig sýndi Natan Guði hollustu og hvernig getum við sýnt þennan eiginleika? (1. Kon. 1:11-14) [22. júní, w12 15.2. bls. 25 gr. 1, 4-5]
Á hvaða sviðum lífsins gæti dómgreind þjóna Guðs brugðist svo þeir freistuðust að fara í kringum boð Guðs eins og Salómon gerði greinilega? (1. Kon. 3:1) [29. júní, w11 15.12. bls. 10, 11 gr. 12-14]