Fréttir af boðunarstarfinu
Í desember 2014 voru 28 hópar í Brautryðjendaskólanum á svæði deildarskrifstofunnar í Skandinavíu. Skólann sóttu 917 brautryðjendur og kennt var á dönsku, ensku, finnsku, norsku, pólsku, spænsku og sænsku. Brautryðjendurnir fengu nýtt námsefni og kennslubók og voru hæstánægðir með skólann. Við viljum nota tækifærið og þakka öllum þeim sem lögðu sitt að mörkum til að gera þetta kleift. Margir eru tilbúnir að bjóða nemendum gistingu eða sjá um mat eða annað sem þarf. Það er mikils metið.