Hefur Biblían áhrif á daglegt líf þitt?
Daglegur biblíulestur getur hjálpað okkur að verða „rótfest“ og „staðföst í trúnni“. (Kól. 2:6, 7) En til að orð Jehóva hafi kröftug áhrif á líf okkar verðum við að hugleiða og heimfæra meginreglur Biblíunnar. (Hebr. 4:12; Jak. 1:22-25) Í Jósúabók 1:8 kemur fram áhrifarík lestraraðferð í þrem liðum: (1) Lestu í Biblíunni „dag og nótt“. (2) Lestu rólega og hugleiddu efnið. Það gerir þér kleyft að setja þig inn í sögusviðið og aðstæðurnar. (3) Fylgdu „nákvæmlega því sem þar er skráð“. Ef þú ferð eftir þessum leiðbeiningum getur það hjálpað þér að „ná settu marki“ og ,farnast vel‘ í daglegu lífi þínu.