FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS | SÁLMAR 79-86
Hver er mikilvægastur í lífi þínu?
Sá sem orti Sálm 83 var sennilega afkomandi Asafs, sem var Levíti og samtíðamaður Davíðs konungs. Þessi sálmur var skrifaður á tíma þegar óvinaþjóðir ógnuðu þjóð Jehóva.
Í bæn sinni hugsaði sálmaskáldið fyrst og fremst um nafn Jehóva og drottinvald en ekki eigið öryggi.
Nú á dögum verða þjónar Guðs aftur og aftur fyrir árásum. Trúfesti okkar og þolgæði er Jehóva til lofs.
Jehóva vill að við þekkjum nafn hans.
Við verðum að sýna í verki að Jehóva er mikilvægastur í lífi okkar.