FJÁRSJÓÐIR Í ORÐI GUÐS | MATTEUS 1-3
„Himnaríki er í nánd“
Útlit Jóhannesar og klæðnaður gaf strax til kynna að hann lifði einföldu lífi og var algerlega helgaður því að gera vilja Guðs.
Sá einstaki heiður að undirbúa komu Jesú var mikilvægari öllum fórnum sem Jóhannes færði.
Ef við lifum einföldu lífi verður auðveldara að gera meira í þjónustu Guðs og það hefur mikla gleði í för með sér. Við getum einfaldað líf okkar með því að ...
koma auga á raunverulegar þarfir.
skera niður ónauðsynleg útgjöld.
gera raunhæfa fjárhagsáætlun.
losa okkur við hluti sem við notum ekki.
borga niður skuldir.
minnka óhóflega veraldlega vinnu.
Mataræði Jóhannesar samanstóð af engisprettum og villihunangi.
Hvaða markmiði mun einfalt líf gera mér kleift að ná?