Varðturninn VEFBÓKASAFN
Varðturninn
VEFBÓKASAFN
íslenska
  • BIBLÍAN
  • RIT
  • SAMKOMUR
  • g16 Nr. 5 bls. 8-9
  • Að fræða barnið um kynferðismál

Ekkert myndband er til fyrir þetta val.

Því miður tókst ekki að hlaða myndbandið.

  • Að fræða barnið um kynferðismál
  • Vaknið! – 2016
  • Millifyrirsagnir
  • Svipað efni
  • VANDINN
  • GOTT ER AÐ VITA
  • HVAÐ ER TIL RÁÐA?
  • Ræðið um kynferðismál við börnin ykkar
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2011
  • Hjálpaðu börnum þínum að tileinka sér góð siðferðisgildi
    Varðturninn kunngerir ríki Jehóva – 2011
  • Hvernig geta foreldrar frætt börnin um kynferðismál?
    Biblíuspurningar og svör
  • Hvernig get ég útskýrt afstöðu mína til kynlífs?
    Ungt fólk spyr
Sjá meira
Vaknið! – 2016
g16 Nr. 5 bls. 8-9
Móðir talar við dótHS.15tur sína á meðan hún hengir þvott út á snúru.

GÓÐ RÁÐ HANDA FJÖLSKYLDUNNI | UPPELDI

Að fræða barnið um kynferðismál

VANDINN

Drengur horfir á nokkrar leiðir til að fá upplýsingar – Biblíuna, bók og rafeindatæki.

Fyrir nokkrum áratugum höfðu foreldrar í það minnsta talsverða möguleika á að vera fyrstir til að ræða við barnið sitt um kynferðismál. Þeir gátu því útskýrt hlutina smám saman, allt eftir aldri barnsins og þörfum.

En nú er öldin önnur. „Sífellt yngri börn eru berskjölduð fyrir kynferðislegum boðskap. Auk þess inniheldur fjölmiðlaefni, sem ætlað er börnum, stöðugt meira af kynferðislegu efni,“ segir í bókinni The Lolita Effect. Er þetta börnum til góðs eða ills?

GOTT ER AÐ VITA

Siðlaust efni er að finna hvarvetna. Í bók sinni Talk to Me First skrifar Deborah Roffman að „samtöl, auglýsingar, kvikmyndir, bækur, söngtextar, sjónvarpsþættir, textaskilaboð, leikir, auglýsingaskilti og síma- og tölvuskjáir [séu] svo yfirfullir af kynferðislegum dylgjum, málfari og myndum að margir [unglingar, táningar og jafnvel ung börn] hljóti að álíta, að minnsta kosti ómeðvitað, að kynlíf sé ... það allra mikilvægasta í lífinu.“

Markaðssetning er hluti af vandanum. Auglýsingahönnuðir og kaupmenn bjóða klæðnað á börn sem ýtir undir kynferðislega athygli. Allt frá unga aldri læra börn því að leggja óhóflega áherslu á útlitið. „Söluaðilar vita að börn vilja falla inn í hópinn hjá jafnöldrum sínum og þeir notfæra sér það,“ segir í bókinni So Sexy So Soon. „Markmiðið með auglýsingunum og vörunum er ekki að fá börn til að hugsa um kynlíf“ heldur „að fá þau til að langa í nýjar vörur“.

Það er ekki nóg að veita upplýsingar. Eitt er að vita hvernig bíll virkar en annað að vera ábyrgur ökumaður. Á svipaðan hátt er eitt að vita ýmislegt um kynferðismál en annað að nota þá þekkingu til að taka viturlegar ákvarðanir.

Kjarni málsins: Það er mikilvægara nú en nokkru sinni fyrr að kenna börnum sínum að ,temja skilningarvitin‘ svo að þau geti lært að „greina gott frá illu“. – Hebreabréfið 5:14, Biblían 1981.

HVAÐ ER TIL RÁÐA?

Ræddu við barnið. Það er á þinni ábyrgð að ræða við börnin þín um kynferðismál sama hversu vandræðalegt þér kann að þykja það. Axlaðu ábyrgðina. – Ráðlegging Biblíunnar: Orðskviðirnir 22:6.

Hafðu samtölin ekki of löng. Í stað þess að eiga eitt langt samtal við barnið um kynferðismál skaltu nota tækifæri sem gefast inn á milli eins og þegar þið farið í bíltúr eða vinnið heimilisverk saman. Til þess að auðvelda barninu að opna sig skaltu spyrja það viðhorfsspurninga. Í stað þess að segja: „Finnst þér þetta flott auglýsing?“ gætirðu sagt: „Af hverju heldur þú að auglýsendur noti svona myndir til að selja vörurnar?“ Þegar barnið hefur tjáð sig gætirðu sagt: „Hvað finnst þér um það?“ – Ráðlegging Biblíunnar: 5. Mósebók 6:6, 7.

Hafðu aldur barnsins í huga. Þegar barnið er undir skólaaldri gætirðu kennt því réttu heitin á kynfærunum og frætt það um hvernig það geti varið sig gegn barnaníðingum. Eftir því sem barnið eldist geturðu frætt það um það helsta sem viðkemur getnaði. Þegar barnið eru komið á táningsaldurinn ættirðu að hafa frætt það um líkamlegar og siðferðilegar hliðar kynlífs.

Innprentaðu barninu góð gildi. Kenndu barninu, allt frá unga aldri, mikilvægi heiðarleika, ráðvendni og virðingar. Þegar þú síðan ræðir við barnið um kynferðismál hefurðu þegar lagt góðan grunn. Tjáðu barninu skýrt hver þín gildi eru. Ef þér finnst til dæmis rangt að fólk hafi kynmök fyrir hjónaband skaltu segja barninu það og útskýra síðan fyrir því hvers vegna það er rangt og skaðlegt. Í bókinni Beyond the Big Talk segir: „Unglingar stunda síður kynlíf ef þeir vita að foreldrum þeirra finnst rangt að unglingar stundi kynlíf.“

Vertu góð fyrirmynd. Farðu eftir þeim gildum sem þú innprentar barninu þínu. Ef þú hlærð til dæmis af grófum bröndurum, klæðir þig ósæmilega eða daðrar getur það grafið undan þeim gildum sem þú ert að reyna að kenna barninu. – Ráðlegging Biblíunnar: Rómverjabréfið 2:21.

Hafðu umræðurnar jákvæðar. Kynlíf er gjöf frá Guði og við réttar kringumstæður – í hjónabandi – getur það veitt mikla ánægju. (Orðskviðirnir 5:18, 19) Segðu barninu að þegar það er orðið fullorðið geti það notið þessarar gjafar án þess að upplifa þá hjartasorg og áhyggjur sem fylgja því að stunda kynlíf fyrir hjónaband. – 1. Tímóteusarbréf 1:18, 19.

LYKILVERS

  • „Fræð hinn unga um veginn sem hann á að halda og á gamals aldri mun hann ekki af honum víkja.“ – Orðskviðirnir 22:6.

  • „Þú skalt brýna [boðorð Guðs] fyrir börnum þínum.“ – 5. Mósebók 6:6, 7.

  • „Þú sem fræðir aðra, hví fræðir þú ekki sjálfan þig?“ – Rómverjabréfið 2:21.

HLUTVERK FORELDRA

Þrátt fyrir að flestir haldi annað hafa foreldrar meiri áhrif á börn sín en jafnaldrar þeirra – það á líka við um þegar þau eru komin á unglingsaldur. „Börn horfa alltaf fyrst til foreldra sinna til að fá leiðsögn í lífinu og skilning á hvernig hlutirnir virka. Þau leita annað aðeins ef þau vita eða finna að við erum ekki til staðar fyrir þau ... Niðurstöður áratugalangra rannsókna ættu því ekki að koma okkur á óvart: Fjölskyldur sem tala opinskátt saman um mál eins og kynferðismál eiga heilbrigðari börn sem taka skynsamlegri ákvarðanir, taka meiri ábyrgð á gerðum sínum og, síðast en ekki síst, bíða frekar með það sem gæti reynst þeim skaðlegt.“ – Talk to Me First.

    Íslensk rit (1985-2025)
    Útskrá
    Innskrá
    • íslenska
    • Deila
    • Stillingar
    • Copyright © 2025 Watch Tower Bible and Tract Society of Pennsylvania
    • Notkunarskilmálar
    • Persónuverndarstefna
    • Persónuverndarstillingar
    • JW.ORG
    • Innskrá
    Deila